Fálkinn


Fálkinn - 17.04.1937, Blaðsíða 4

Fálkinn - 17.04.1937, Blaðsíða 4
4 F Á L K I N N Leikfjelag Reykjavíkur 40 ára. Saga Leikfjelags Reykjavíkur verður ekki sögð til neinnai hlítar í fám orðum. Þeir sem til þekkja vita að verkefnaval og útfærsla leikrita á einu leik- ári getur gefið tilefni til langra hugleiðinga, hvað þá heldur þeg ar leikárin eru orðin 40. En á þeim tímamótum, sem fjelagið stendur nú, með 40 ára slarfs- feril að baki, er sjálfsagt að líta Arni Eiríksson i Áslákur prentari i „ÞjóöníSingur. um öxl og sjá livað fjelagið hefir á orkað. Leikfjelag Reykjavíkur er fyrst og fremst menningarfje- lag — ekki skemtifélag, þó það Jiafi tíðum skemt íbúum Jiöfuð- staðarins með gleðileilijum og gamanleikjum. Fjelagið er stofn að til að halda uppi leiklist í höfuðstaðnum, og í þeim anda hefir það starfað alt frá stofn- degi. Fjelagið er fyrsti verulegi vísirinn að reglulegu leikhúsi lijer á landi. Þetta hefir stofn- endunum verið Ijóst, því þeir sniðu starfskrá sina eftir starf- skrám leikhúsa í nágranna lönd unum, en síðan liafa lög og reglur L. R. verið fyrirmyndin, sem flest leikfjelög landsins hafa tekið sjer, þegar þau voru sett á laggirnar. Leikfjelagið er stofnað 11. jan. 1897, en það tók ekki til starfa fyr en á næsta leikári, en þá, 18. des. s. ár, var fyrsta leiksýning fjelagsins haldín. Stofnendur voru 19, en auk þess gengu í fjelagið á fyrsta ári tvær ungar stúlkur, sem ekki fjörðs kaupmanns við Bröttu- götu, sem síðar varð kvikmynda hús (Gamla Bíó). Þessi leikhús voru ekki sambærileg við Iðnó, sem átti að vera alment sam- Steján fíunólfsson og Þuríötir Sig- uröardóttir, sem hjónin í „Nýárs- nóttinni". voru stofnendur. Af þessum hóp eru nú ekki lifandi nema sex; Ungfrú Gunnþórunn Iialldórs- dóttir, ungfrú Þuríður Sigurð- ardóttir, Friðf. Guðjónsson prentari, Brynj. Þorláksson kennari og Davíð Heilmann prentari*) úr flokki fyrstu leik- enda og Magnús Benjamínsson úrsmiður úr flokki styrktar- fjelaga. Drögin til þess að L. R. var stofnað voru þau, að á árinu 1897 var Iðnaðarmannahúsið, sem nú er kallað Iðnó, fullbygt með leiksviði og góðum áhorf- endasal. í bænum voru þá tvö leikfjelög slarfandi, en þau voru bundin við sitt livort hús, Good- templaraliúsið og leikhús Breið- ‘) Busettur í Kaupmannahöfn. kvæmishús fyrir bæjarbúa. Nú vildi svo til, að í vörslu bæjar- sljórnar Reykjavíkur var sjóð- ur einn, „Coulissu-sjóður bæj- arins“, gefinn af forráðamönn- um gleðileikjanna 1866, sem varið skyldi þeim til handa, sem kæmu upp almefinu samkvæm- ishúsi með leiksviði, enda tæki þá leikfjelag við eigrium sjóðs- ins, sem voru leiktjöld og bún- ingar auk nokkurra peninga, til æfinlegrar vörslu og ávöxt- unar. Leikfjelag Reykjavikur, sem nú var stofnað fyrir áeggj- an iðnaðarmanna og með for- yslu Þorvarðar Þorvarðssonar prentara, tók nú við sjóðnum og afhenti Iðnaðarmannafjelag- iiiU með sjerstökum samningi, en fjekk inni í hinu nýja leik- liúsi í staðinn með mjög vægum Frn Stefanía Guðmuniísdóttir í Frú X. leiguskilmálum. Alt það vafstur. sem varð útaf „Coulissjóðn- um“ er nú fallið i gleymsku og dá, en ákvæði gjafabrjefs og samnings liafa aldrei veriö haldin sem skyldi, og þegar ný- ir eigendur tóku við húsinu virðist hvorttveggja hafa verið dottið upp fyrir. Fjelagið tók nú til starfa, en í stjórn þess voru kosnir: Þorv. Þorvarðsson form., Borgþór Jósefsson gjaldkeri og' Friðfinn- ur Guðjónsson ritari. Báðir þeir siðarlöldu áttu sæti í stjórn fjelagsins um langa liríð, Borg- þór sem gjaldkeri í 19 ár og Friðfinnur ritari í 25 ár, en formaður i eitt ár. Annars hafa tið stjórnarskifti átl sjer stað í fjelaginu, og það m. a. dregið mjög úr vexti þess og viðgangi Þeir, sem verið hafa formenn fjelagsins, eru: Þorvarður Þorvarðarson prent- smjðjustjóri 1897 1904. Arni Eiriksson kaupm. 1904 ’1ri og 1913—’15. Jens B. Waage bankastj. 1910 ’13. Kristján Ó. Þorgrimsson kaupm. 1915, dó sama ár. Jakob Möller alþm. 1915—’17 og 1928— ’'29. Einar H. Iívaran rith. 1917—’22 Guðrún Indriðadóttir leikkona 1922—’24. Stefanía Guðmundsd. leikkona 1924—’25. Kristján Albertson rithöf. 1925 —!'26. Indriði Waage bankaritari 1926 —28. Friðfinnur Guðjónsson leikari 1929— ’30. Har. Björnsson leikari 1930—’33 Lárus Sigurbjörnsson rithöf. 1933—’'35. Har. Á. Sigurðsson konsúll 1935 —36 og núverandi form. Ragnar E. Kvaran. Þau leikrit, sem fjelagið lók lil sýningar voru fyrst framan af fremur veigalítil, mestmegnis

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.