Fálkinn


Fálkinn - 18.06.1938, Blaðsíða 5

Fálkinn - 18.06.1938, Blaðsíða 5
Adotf Hitler. fulltrúastöðu hennar eftir Stal- iu fjelaga sinn og fyrirmynd. Vorosjilov er fæddur í Ukraine og er ljúmannlegur á svip eins og flestir Suður-Rússar og nokk- uð kringluleitur. En hann kann- ast við sig í Norður-Rússlandi líka, því að árið 1907 var hann sendur í fangavist til Arkang- elsk. Ef hinn væntanlegi einvalds- herra Rússlands hefir nokkurn galla þá væri það helst sá, að hann er ekki nægilega tortrygg- inn til þess að komast fyrir mótþróa gegn sjer í tæka tíð. En það ætti hann þó að geta lært af vini sinum Stalin. Og kannske lekst lionum að hreinsa svo vel til, að enginn dirfist að brugga launráð þegar Voro- sjilov er tekinn við völdum. ÞÝSKALAND. Stundum heyrist því fleygt, að Hitler liafi i hyggju að draga sig í hlje frá foringjastörfun- um og setjast í Jielgan stein. Og vitanlega er þá jafnan varp- að fram þeirri spurningu, hver eigi að taka við af honum. Þeir þrír menn sem stjórna Þýskalandi í dag eru í rauninni einn þríeinn Hitler. Hann hefir vitanlega orðið að ljetta ein- liverju af sjer af hinum feikna- miklu störfum, og það liefir hann lagl á herðar Herman Wilhelm Görings marskálks og Paul Josepli Göbbels. Þessir þrír menn vinna saman sem einn maður. Það þarf ekki að draga i efa, að Göring á miklu meiri vin- sældum að fagna i Þýskalandi en Göbbels. Göring er alþýskur í anda og útliti, hann er karl- mannlegur og liefir gaman af hernaðarprjáli og elskar digur- mæli. Þó að Gölibels sje mað- ur hráðgáfaður þá er hann peð, og jafnvel trúir nasistar hafa það til að lienda gaman að hon- um. Dr. Erieli Gritzbach, íormað- ur prússnesku frjettastofunnar hefir skrifað æfisögu Görings ög telur þar fremstu kosti hans þessa: 1. Manngöfgi, 2. Júðahat- ur, 3. Viðkvæmni. Allir Þjóð- verjar þekkja þá hersögu. sem lýsir göfugmensku Görings. Hann var einn af kunnustu flugmönnum Þýskalands. Einu sinni lenti honum saman í loft- orustu við danslcan flugmann, sem barðisl með Frökkum. „Vjelbyssan mín brotnaði“, sagði Daninn síðar, „og þegar Göring sá að jeg var varnar- laus flaug hann meðfram vjel- inni minni, bandaði til mín hendinni og fór sina leið“. I æfisögu þessari er sagl frá því, að þegar Göring var strák- ur vandi hann hundinn sinn á að bíla Gyðinga. Og hvað við- kvæmnina snertir þá kunna fje- lagar hans margar sögur af því, hve liann sje góður við skepnur. Göring fer á fætur kiukkan sjö á morgnana og tekur sjer kalt stej'pubað. Ef liann er ön- ugur á morgnana setur þjónn- inn hans plötu á grammófóninn og spilar Hetjumarsinn úr „Göt- terdámmerung“ Wagners, og þá rýkur fýian úr Göring. Æfisög- unni lýkur með því, að kalla Göring tryggasta riddara Hitl- ers. Annars eru þeir ólikir um margt. Þeir eru að vísu báðir viljasterkir menn og markvissir. Hitler gerir sjer mest far um, að koma því í framkvæmd sem lionum dettur sjálfum i hug, og finst meira vert um það en all annað. Þessvegna er hann mað- ur einhliða. En Prússinn og her- maðurinn Göring er fyrst og fremst raunverumaður í stjórn- málum og öðru og maður eink- ar fjölhæfur. Ilann er í dag her- foringi, stjórnmálamaður, ræðu- maður, skipulagsfrömuður, hann hefir gott vil á listum og er mikill íþróttamaður. Göring veit, ekki síður en Mussolini, að það er nauðsyn- legt að gera eitthvað, sem heill- ar fólkið. Hann er glysmaður mikill og hefir gaman af her- sýningum. Á almannafæri birt- ist hann jafnan í einkennisbún- Herman Göring. ingi og með ógrynnin öli af krossum og heiðursmerkjum og temur sjer áberandi tilburði, eins og leikari á leiksviði. En jafnframt er liann einn af þeim fáu foringjuin nasista, sem hafa gaman af spaugi, og liann er jafnan manna fyrstur til að hlæja að skrítlunum, sem búnar eru til um hann. En hann er athafnamaður fyrst og fremst. Eftir heimsstyrjöldina gerð- ist hann flugmaður í Danmörku og í Svíþjóð. Einu sinni varð hann að nauðlenda í Svíþjóð nálægt búgarði barónessunnar Karin von Foch. Feldu þau hugi saman og lifðu i hjónabandi til 1931 að hún andaðist. En fjór- um árum siðar kvæntist Göring í 2. sinn, hinni fögru leikkonu Emmy Sonnemann. Það var á árunum fjórum, milh hjónabandanna, að Göring gerðist stjórnmálamaður. En hlyntur hafði hann verið nasism anum frá því 1921. Það ár tók hann þátt í kröfufundinum í Múnchen og varð þar fyrir á- falli, því að sár frá heimsstyrj- öldinni rifnuðu upp. Þessi sár hafa aldrei gróið alveg siðan og Göring hefir oft miklar þján- ingar af þeim. Læknarnir liafa ráðlagt honum að halda sjer í miklum holdum, til þess að hafa minni óþægindi af sárunum. En áður hafði hann notað deyfing- armeðul til þess að sefa kval- irnar og var orðinn bilaður á taugunum. Gat hann þó vanið sig af eiturnotkuninni á heilsu- hæli í Svíþjóð. Þegar Þjóðvei'jar náðuðu þá sem flúið höfðu úr landi, eftir nasistauppþotið í Munchen, flutt ist Göring ti Þýskalands aftur. Það var 1927. Hann vai'ð þegar hægri hönd Hitlers og 1932 varð hann forseti ríkisþingsins. Og nú hófst framaleið hans, sem á sjer fá dæmi. Hann óx af hverju verki og þó hann leggi oft í tvisýnu ber hann jafnan sigur af hólmi. Tengslin milli hans og Hitlers hafa orðið sterk- ari með hverju árinu og hann er nauðsynlegri maður í ríki nasismans nú en nokkru sinní fyr. Aðalstarf hans þessi árin, auk þess sem hann er mar- skálkur og herstjóri Þýskalands, er framkvæmd 4-ára áætlunar- innar. Jafnframt þessu er liann einnig: fox’sætisráðlierra Prúss- lands, foringi flugliðsins, Iiers- liöfðingi í fótgönguliðinu, for- seti ríkislögreglunnar, forseti ríkisþingsins, forseli skógrækt- armálanna, forseti leynilögregl- unnar og flokksforingi í S. S,- liðinu. En Göring er eldri maður en Hitler og engin ástæða til þess að halda að liann verði lang- lifari. Og liver tekur þá við, ef hann deyr á undan Hitler. Það er sagt, að Hitler liafi kjörið ann an mann til vara, sem eftir- mann sinn — afkomanda keis- arans, en á þeirri sögu er var- lega mark takandi. RIDDARALIÐ FRANCO. Síðustu vikumar hefir veriS bar- ist af niikilli grinul á Spáni og Francoliðið unnið á. Mjer sjesl mynii af riddaraliði úr Franco-hernum. Austur i Persíu var shajnn Sapor II. krýndur áður en hann fæddist Shajnn Hormouz, faðir lians var dá- inn og frændur lians ætluðu að reyna að ná undir sig ríkinu. Var nú fenginn fróður maður til þess að skera úr, hvort barnið, sem drot.i ingin gengi með væri piltur eða stúlka og sagði hann örugt, að það væri piltur. Var cirotningin nú flutt inn í krýningarsalinn og fór þar fram krýningarathöfn og kóróna konungs látin á magann á henni. Barnið fæddist og reyndist vera sveinbarn og rikti vel og lengi Pátrekur verndarvættur írlands, var ekki írskur heldur franskur. Hann fæddist i Tours í Frakklandi og hjet rjettu nafni Succat. Faðir hans hjet Calpurnius en móðir hans var systir Martins gæsabiskups af Tours, þess sem Marteinsmessa er kend við.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.