Fálkinn


Fálkinn - 10.12.1938, Blaðsíða 4

Fálkinn - 10.12.1938, Blaðsíða 4
4 F A L K I N N Mustafa Kemal Kemal Ataturk. I. Tíunda nóvember síðastliðinn Ijest í Istambul hinn kunni ein- valdi Tyrklands, Kemal Atatiirk, sem án efa liefir verið lang dug- legasti niaðurinn, sem Tyrkja- veldi hefir alið öldum saman. í tilefni af dauða einvaldans birtir „Fálkinn“ grein um helstu æfi- atriði hans og minnist að nokkru á stærstu breytingar, sem orðið liafa i Tyrklandi fyrir verknað lians, sem telja má byltingu. Af mörgum hefir honum verið líkl við Pjetur mikla Rússakeisara og aðaiæfislarf þeirra er sama að þvi leyti, að þeir ryðja vest- rænni menningu braut með þjóð- um sinum. II. Sú mongólskra þjóða, sem öld- um saman hafði yfir sjer mest- an ægisbjálm voru Tyrkir. Þeir eru kynjaðir austan úr Miðasiu. Undir stjórn Ósmana á 14. öld verða þeir öflugt herveldi, er ekkert stenst fyrir. Æðsti maður þeirra var kallaður soldán, og voru soldánarnir snennna ein- valdir og margir hverjum fram eftir öldum hinir nýtustu menn. Þar á mcðal Múhaineð II. og Suleiman mikli. Um miðja 15. öld var Tyrkja- soldán orðinn svo voldugur að liann settisl um höfuðborg hins byzantiska ríkis, Konstantinopel Ismet Paslia hinn nýji forseti Tyrklands. og vann bana eftir nokkra um- sát. Hjell landvinningum Tyrkja nú ört áfram á Balkanskaga, um Ungverjaland og Suður-Rúss- land. Seint á 17. öld settust þeir úm Vínarborg. Sjer enn merki skothríðar þeirra á einu stærsta kiikjuhúsi borgarinnar. En nú var toppnum náð. Mið-Evrópu- þjóðirnar sameinuðust gegn þeim og sigruðu þá skamt frá Vín. Æfi þjóðanna má oft líkja við mannsæfina. í sögu þeirra eru æsku, manndóms- og elliár. Og einkenni þessara tímabila eru glögg í sögu tyrknesku þjóðar- innar. Þjóðin bafði náð mann- dómstindinum, bátindinum, og nú fór henni að hnigna. Smám saman mistu Tvrkir svo lönd sín hér í Evrópu. Fyrst þau er fjarst lágu sjálfu Tvrklandi og siðan eitt af öðru. Grikkir brutust undan oki þeirra 1830 og þegar kom lengra fram á 19. öldina fóru aðrar Ralkan-þjóðir að dæmi þeirra. Og nú var alment farið að kalla Iiina herskáu þjóð, Tyrki, „sjúk- linginn“, en áður bafði hún vak- ið ótta og skelfingu allra nær- liggjandi þjóða. Árið 1911 tóku ílalir Tripolis af Tyrkjum og ári seinna skall svo á Balkan- ófriðurinn, er lauk með hræði- legum ósigri Tyrkja, svo að þeir mistu allan meginhluta þeirra landa sem þeir áttu eftir í Ev- rópu. — Svo skall á heimsstríðið. Fyrir áeggjan tvrknesks stjórnmála- manns, er lijet Envar Pasha, snerust Tyrkir í lið með Mið- veldunum. Ilann bafði fengið herforingjamentun í Þýskalandi og var einn aðalmaðurinn fyrir Ungtyrkjahreyfingunni, sem mik ið gætti um skeið í landinu, og hleypti byltingu af stað 1908, rak soldán frá völdum og tók þau í sínar hendur. Sú breyfing hafði á stefnuskrá að semja sig að siðum vestrænna þjóða. I heims- styrjöldinni biðu Tyrkir hið mesta niðurlag. Voru allar likur til þess fyrst eftir heimsstyrjöld- ina, að tyrkneská rikið mundi al- veg líða undir lok. En þá rís npp sá maður, er telja má höfund liins nýja tvrkneska ríkis, og skal nú sagt frá honum i stuttu máli. III Mústafa Kemal var fæddur í Saloniki, sem áður hjet Þessa- lonika, árið 1880. Voru foreldrar hans bæði tyrknesk og faðir hans fremur lágt setlur embættismað- ur, enda fátækur. Mústafa komst þó í herfor- ingjaskóla, og þótti duglegur námsmaður, einkum í sögu og stærðfræði. En fáskiftinn þólti ltann í mcira lagi og þögull í skólanum og eignaðist fáa vini. Metorðagirndin, sem jafnan var eitt aðaleinkenni bans síðar, kom mjög glögl i Ijós strax i skóla. Kemal Atatiirk má með rjéttu kalla föður hins nýja Tyrk- lands. Hann var afburða mikilmenni, bæði sem hershöfð- ingi og stjórnvitringur, þó að grimmur þætti hann nokk- uð. Frá stofnun lýðveldisins og til dánardags hans, er bar að fyrir fáum vikum, var hann alveg einvaldur í Tyrklandi. Frá Istambul (Konstantinopel). AtatUrk. Sem kornungur maður gekk bann ungtyrknesku hreyfing- unni á hönd, en eftir því sem bann komst til meiri álirifa i benni kom það í ljós, að hann og Envar Pasha, áttu ekki skap saman. Mústafa Kemal tók bæði þátt i Tripólisstríðinu og Balkanó- friðnum og gat sjer þó ungur » væri ágætan orðstír. Og i heims- ófriðnum vakti hann á sjer mikla athygli fyrir herkænsku og stjórnsnilli, þegar liann varði Gallipóliskagann fýrir árásum Englendinga og Frakka og varð þeim þar aldrei neitt ágengt, þó að þeir hefðu miklu meira lið. Annars er það álitið að Mústafa Kemal liafi verið á móti þvi að Tyrkir færu i stríðið, en ráð Envar Pasha máttu sín meira. En talið er að óvildin milli þeirra hafi magnast við þetta. Eins og almenningur veit guldu Tyrkir hin mestu afhroð í stríð- inu og sömdu þeir um vopna- lilje í Mudros áður en hin Mið- veldin gáfust upp. Tvrkneska stjórnin varð að ganga að afar börðum friðarskilmálum á fundi, er síðar var haldinn í Sevrés. Samkvæmt honum fengu þeir ekkert land í Evrópu nema Kon- slantinopcl og eilítinn landskika út frá borginni. Og í Litlu-Asíu voru þeir sviftir beslu landshlut- unum, meðfram ströndinni, og öllum helstu borgunum. M. a. binni fornfrægu borg, SmjTnu. Voru Grikkjum ætluð þessi lönd. Kemal, sem var eldheitur ættjarðarvinur, sveið mjög sárt niðurlæging þjóðar sinnar, ekki sist íyrir það, að áður bafði hún verið mikil og voldug þjóð. Honum tekst að vinna margl Síðasta myndin af Kcmal Atatiirk.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.