Fálkinn


Fálkinn - 25.07.1941, Blaðsíða 3

Fálkinn - 25.07.1941, Blaðsíða 3
F Á L Ií I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. fíitstjóri: Skúli Skúlason. I'ramkv.stjóri: Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankaslr. 3, Reykjavík. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6. BlaSið keinur út hvern föstudag. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsinc/averð: 30 aura millim. HERBERTSprent. Skraddaratiankar. Það liefir gerst á nýjan leik, að Þjóðverjar hafa vegið 1 islcnskan knjerunn og sökt skipi hjeðan. Ekki yar ])að skip á leið til Englands, og hvorki flutti ]>að matvæli nje þvi síður bannvöru, þvi að skipið var tómt. Það átti að sækja vestur um haf ríauðsynjavörur — ekki handa út- lendum her heldur handa þjóðinni sjálfri. Nú erú sumir að spyrja skýringa á þessum sorglega atburði, sem kost- aði 14 íslendinga lífið. Fjórtán itianns á besta skeiði sá elsti þeirra var 47 ára en flestir þeirra milli tvítugs og þrítugs. — En skýr- ingin er torfundin ef hún ætti að vera rökfost. Ekki skiftir það neinu um úrstit ófriðarins, þó að þetla ís- lenska skip hefði fengið að vera ofansjávar áfram. Og ekki er þetta að mannlegum eða sijðferðitegum lögum. Það er ekki líeldur að stríðs- lögum, ]>ví að það er ótvirætt brot á þeim alþjóðasamþyktum, sem gerð- ar liafa verið um siglingar á ófriðar- timum. Af hátfu gerræðismannanna, sem voru jafnvel svo ráusnarlegir að eyða lundurskeyti á þetta tóma skip, i stað þess að fara um horð í það og setja tímasprengju í vjela- rúmið, cr engin afsökun lil fyrir verknaðinum — hann er og verður svívirðingarblettur á þeirri þjóð, sem fremst hefir gengið i því að virða að vettugi gildandi alþjóða- reglur, sem hefir sjeð sóma sinn í að beita grimd við saklausa aðila og varnarlausa og sem hefir hætst um af því, sem að jafnaði ar kallað vitfirringsæði hinnar svörtustu sið- spillingar. Er það herstjórnin sem þessu ræð- ur, eða er það „afreksverk“ ung- gæðislegs kafbátaforingja, sem hyggst að auka frama sinn hjá liúsbændun- um með verknaðinum? Þess er oft getið til, þegar um þessu líka atburði er að ræða, að ástæðan sje sú, sem síðar var nefnd. En þetta er alls ekki víst. Það er kunnugt, að „taugastriðið“ liefir aldrei verið háð i jafnríkum mæli og undir þessa styrjöld og það sem af henni er. Það er biturt vopn að hræða almúgann, Heilar þjóðir hafa verið hræddar til að gangast undir kúgun. Aðrar þjóðir eru liræddar tit þess að leggja árar í bát, setjast i sekk og ösku og halda að sjer höndum. Er skemsl að minn- ast áhrifanna, sem sú liríð hafði, er gerð var að íslenskum skipum i Englandssiglirígum á síðasta vori — liðar en hafnbannið var sett á ís- land. Táknar síðasti atburðurinn það, að nú sje í vændum nýtt bann á höfunum alla leið frá íslandi til Ameriku? E. S. „HEKLA“ SKOTIN í KAF- á.leid tii Ameríku - 14 manns farast. Einar Kristjánsson. Kristján Bjarnason. Jón Erlingsson. Sveinbjörn Ársælsson. Hinn 27. f. m. lagði „Hekla“ úr böfn í Reykjavík. Skipið ftulti engar vörur vestur, en hafði verið leigt af Eimskipafjetagi íslands lil þess að sækja ýmsar nauðsynjavörur lil Halifax, .Nova Scotia. Svo liðu nær þrjár vikur og ekk- ert spurði til skipsins. Það kom ekki til hafnar í Halifax á eðlitegum líma, jafnvel þó gert væri ráð fyrir löf- um á leiðinni, svo sem af ofviðri eða vegna breytinga á siglingaleið. En um miðja vikuna sem leið barst eigendum skipsins, h.f. Kveldúlfi orðsending um það frá bretsku flota- stjórninni hjer, að kanadiskl lierskip liefði bjargað sjö mönnum af „Heklu“ og liefði hún verið skotin i kaf með tundurskeyti (torpederuð), einlivers- staðar á leiðinni tit Halifax. Líkur henda til að skipið hafi verið komið meira en hálfa leið vestur þegar á- rásin var gerð á það. Aðstandendum skipverja var til- kyntur þessi sorgaratburður á fimtu- dagskvötdið annað en var. En ])á var enn ekki frjett hvcrjir það væru af skipsliöfninni, sem bjargast hefðu, Sú frjett gat ekki komist liingað fyr en herskipið canadiska var kom- ið í höfn vestra. En á föstudaginn kom nánari frjett, þar sem tilgreind voru nöfn þeirra sjö, sem bjargast liöfðu af skipinu, en jafnframt var sagt frá því í skeytinrí, að einn þess- ara manna, Karl Þ. Guðmundsson, hefði látist á Jeiðinni til hafnar. Hvort það hefir verið af vosbúð eða sárum er enn ókunnugt. Ötl nánari atvik að þessu síðasta slórslysi af völdum ófriðarins eru enn ókunnug og verða það sennilcga þangað til hinir eftirlifandi skip- verjar koma heim. En það er her- sýnilegt, að skipverjum hefir ekki verið gefinn kostur á að komast í bátana og eru þannig gtögg ætlar- mót með þessum verknaði og þcim, sem framinn var á íslenskum fiski- veiðiskipum í vor sem leið. Hekla liafði tvo stóra björgunarbáta, sem gátu borið um 60 manns, var ann- ar þeirra með vjel og báðir með öll- um þeim útbúnaði, sem tíðkast á skipum nú. Það er mjög sennilegl, að ekki hafi gefisl tækifæri til að koma þessum björgunarbát niður af skipinu. Hekla var bygð árið 1907 og var eign norska fjelagsins .Söndenfjeldske'* áður en hún var kcypt hingað Ii I lands af „Eimskipafjelagi Reykjavík- ur“ og hjet l>á „Kong Inge“. Fyrir rösku ári seldi „Eimskipafjelag Reykjavíkur" Kveldúlfi li.f. skipið. „Hekla“ var 1450 þungasmálestir að stærð. — —; Viggó Þorgilsson. Ásbjörn Ásbjörnsson. Sigurður Þórarinsson. Jón H. Kristjánsson. Haftiði Ólafsson. Bjarni Þorvarðsson. Frh. ú hls. t'i. Matthías Rögnvaldsson. Kar'l. Þ. Guðmundsson. Haraldur Sveinsson.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.