Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fįlkinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fįlkinn

						FÁLKINN

Blöðin hafa undanfarin ár allt-

af öðru hvoru minnst á fljúgandi

diska, og oftast nær hafa þeir

verið taldir til heims hugarburð-

arins, en ekki vísindalegra stað-

reynda. Athyglin á þessum fyrir-

brigðum hefir þó sívaxið, og

þeirri skoðun hefir vaxið fylgi,

að fljúgandi diskar séu enginn

hugarburður. Margar skýringar

hafa komið fram í þessu efni, og

sumar eru mjög athyglisverðar.

Fyrir nokkrum mánuðum var einn

reyndasti flugmaður bandaríska flug-

flotans, kapteinn Thomas Mantell, á

æfingaflugi við Fort Knox í Banda-

rikjunum. Tvær flugvélar, auk þeirr-

ar sem hann stýrði tóku þátt í æf-

ingunum. Þegar hann hafði verið

góðan stundarfjórðung uppi i loft-

inu, hvatti stjórnturninn á Godman

flugvellinum hann til að rannsaka

undarlegt fyrirbrigði i loftinu, sem

sést hefði neðan frá vellinum. Fyrir-

brigði þetta stefndi í áttina til vél-

ar hans.

Nokkrum minútum siðar tilkynnti

Mantell, að hann hefði komið auga

á; fyrirbrigðið. Það væri beint uppi

yfir vélinni. „Það lítur út sem glitr-

andi ískaka með einhverju rauðu

ofan á," sagði Mantell i taltækið.

Skömmu síðar heyrðist aftur til

hans.

„Nú nálgast ég hlutinn óðum.

Hann er beint framundan og fer

geyst. Hann virðist vera úr málmi."

Næstu 25 mínútur reyndi Mantell

ásamt hinum tveimur flugmönnum

að nálgast hlutinn, en það bar lítinn

árangur. Mantell sagðist halda að

hann færi með 360 mílna hraða,

þ. e. a. s. svipuðum hraða og flug-

vélin hans.

Nokkru síðar lentu flugvélarnar í

skýjaþykkni. Þegar fylgdarflugvélar

Mantells komust út úr þvi, höfðu

flugmennirnir á þeim týnt sjónum

á fyrirbærinu og flugvél Mantells.

Þær sveimuðu um stundarkorn, en

lækkuðu   svo   flugið og   lentu.

Einu sinni ennþá lét Mantell

heyrast til sín. Kvaðst hann ekki

nálgast hlutinn neitt og kæmist ekki

hærra, þvi að hann hefði súrefnis-

tækin ekki meðferðis.

Siðan hefir ekkert heyrst til Man-

tells.

Marsbúar á ferðinm? Leynivopn? Nýtt stjarnfræðilegt fyrirbrigði?

Fljúgandi diskar

Lík hans fannst illa farið utan við

Fort Knox hálfum degi síðar. Brak

úr flugvél hans fannst þar á við

og dreif um eins ferkílómeters svæði.

Hún virtist bókstaflega hafa „leystst

upp" i loftinu. í opinberu tilkynn-

ungunni var. sagt, að Mantell mundi

hafa misst meðvitundina, þegar súr-

cfnisleysið gerði vart við sig, og ekki

hafa rankað við sér aftur fyrr en um

seinan. Félagar Mantels á God-

man vellinum voru samt ekki gin-

keyptir fyrir þessari skýringu. Þeir

sögðu:   „Mantell var   reyndari   flug-

Margir halda, að fljúgandi diskar"

séu aðeins til í ímyndun auðtrúa

fólks. Mörg blöð notfærðn sér því

1. apríl til þess að hlaupa með þetta

fólk í gönur. Parisarblað eitt birti

þessa mynd í 1. apríl hefti sína og

á að vera skopstæling á „fljúgandi

diski."

í desembermánuði síðastliðnum

kom bandaríski flugherinn á fót rann

sóknarnefnd til þess að kynna sér 375

tilfelli, þar sem lýsing fylgdi á sýn

þessara furðulegu fyrirbæra. Aðal-

bækistöðvar nefndarinnar voru i

Ohio. Eftir nokkurra vikna störf

skilaði hún áliti. Niðurstaðan var sú,

að hér væri ýmist um ýmis loft-

siglingafyrirbæri að ræða (loftbelgi

með radartækjum og öðrum til-

raunatækjum, loftbelgi með veðurat-

huganatækjum, tilraunaflugvélar af

ýmsum   gerðuin   o.   fl.),   sefjun   og

öðrum hnöttum." í Belgiu var meira

að segja farið að leita að flugmanni

úr einni flugvélinni, sem átti að

hafa hrapað. Það var eitt miðdegis-

blaðið sem lét lesendur sína þannig

hlaupa april út i skóg til þess að

leita. Það vitnaðist brátt að hér var

um gabb að ræða.

Hvorki skýring Keyholes eða

bandarísku nefndarinnar hefir ver-

ið tekin gild. Hitt þótti einkenni-

legt og athugavert, að disksýnirnar

hófust fyrir alvör-u i júlí 1947, mögn

uðust ákaflega í apríl og júli 1948,

minnkuðu síðan, en uxu aftur i apríl

og júli 1949 og hafa enn verið tíðar

í  aprílmánuði í ár.

Þess vegna hefir siðasta skýring-

in, sem kemur samtímis frá tveim-

ur aðilum, vakið geysilega athygli.

Önnur   kemur   frá   Bandaríkjunum,

en hin frá Þýskalandi.

*            *            *

í 7. apríl-hefti bandariska blaðs-

ins „United States News and World

Report," sem er þekkt fyrir annað

cn Gróusögur   og   stjórnað af David

„Fl'júgandi disk-

ur" af „hclicopt-

erV- gerðinni (hug

mynd).

maður en svo, að hann léti slikt

koma fyrir. Hann vissi, hvenær súr-

efnisleysið tók að gera vart við sig

og hlýtur að hafa gert sinar ráðstaf-

anir samkvæmt því. Hann vakti

meira að segja sjálfur athygli á hætt-

unni i taltækinu. Sennilegast er, að

hann hafi rekist á hlutinn, sem hann

elti." Sérfræðingar' telja líka, að

flugvélin hefði ekki tætst eins í

sundur og brotin dreifst eins viða,

ef hún hefði hrapað til jarðar i

heilu lagi.

Og nú er Mantell af ýmsum talinn

fyrsta fórnin á altari hinna „fljúg-

andi  diska."

*            *            *

Fyrstu frásagnir af sýnum „fljúg-

andi diska" eru nú orðnar þriggja

ára gamlar. Það var í Norður-Sví-

þjóð, Eystrasaltinu og Danmörku,

sem oftast varð vart við þessar

furðusýnir í fyrstu. Síðan er eins

og fyrirbærið flytji um set til Bandá-

rikjanna, þar sem „fljúgandi disk-

ar" sjást næstum þvi á hverjum degi

næstu 18 mánuði. Sumar sögurnar

þaðan eru greinilega sprottnar af

hugarburði veikgeðja fólks, sem hef-

ir sefjast af talinu um fyrirbærið.

Ýmsar þessara sagna eru þó merki-

legar og erfitt að hafna þeim sem

hugarburði, þótt skýring sé torveld.

Síðan hafa „fljúgandi diskar" sést

yfir Miðjarðarhafinu og aðliggjandi

löndum, og fyrri helming aprilmán-

aðar niina í ár hafa komið nákvæm-

ar lýsingar á sýnum þessum frá

Mexico, 8 stöðum í Bandaríkjunum,

tveimur í Kanada, tveimur í Eng-

landi og einum í Egyptalandi.

móðursýki hjá sjáendum ímyndaðra

fyrirbæra eða blátt áfram tilraun til

markvissrar gamansemi og gárunga-

skapar („practical jokes"). Skýrsla

nefndarinnar hafði samt ekki meiri

áhrif en það, að áfram berast til

hennar fjöldi af skýrslum um fyrir-

bæri þessi,  sem   þegar   hafa   sést   í

43 af 48 fylkjum Bandaríkjanna.

*          *          *

Nýlega hefir ný skýring verið sett

fram á fyrirbærunum. Hún er að

vísu ekki frá opinberum* aðilum, en

þó frá þekktum flugmanni, Donald

Keyhole, sem á sínum tíma var að-

stoðarmaður Lindberghs og að und-

anförnu upplýsingastjóri i flugmála-

deild bandari,ska verslunarráðuneyt-

isins. Skýringin birtist i tímaritinu

„True" (þó a allt sé að vísu ekki

heilagur sannleikur, sem þar stend-

ur á prenti) og er þannig i stuttu

máli:

Síðustu 175 árin hefir jörðin leg-

ið undir njósnum frá öðrum hnetti.

Til þessara njósna hafa verið not-

aðar litlar, disklaga vélar, flugmanns

lausar, en búnar fjarsýnistækjum og

stjórnað með bylgjusendingum. Einn

ig hafa verið notaðar stórar disklaga

flugvélar, sem byggjast á svipuðum

grundvallaratriðum og „helicopter-

inn" og geta flutt með sér flugmenn

og flugvélar, sem líkjast mest hin-

um nýju, vængjalausu amerisku flug-

vélum.

Skýringin virðist sett fram í fúl-

ustu alvöru og hún hefir orðið til

þess, að í Bandaríkjunum og Frakk-

landi þykjast menn hafa fundið

„málmagnir úr njósnarflugvélum frá

Laurence, þekktum lofthernaðar-

fræðingi, er því slegið föstu, að

hinir svokölluðu „fljúgandi diskar"

séu leynivopn, sem valda muni bylt-

ingu i gerð hernaðartækja og hern-

aði, séu framleidd í verksmiðjum í

Bandarikjunum og séu sambland af

„helicopter" og þrýstloftsflugvél

„Fyrsta módelið af þessari gerð var

framleitt árið 1942 af bandariskum

verkfræðingum, og yfir 100 tilrauna-

flug heppnuðust vel. Up'pfinningin

var fengin flotanum i liendur, og í

dag eru fullkomnari módel búin til

af þessari gerð." „Byggingarleyndar-

mál þessara „diska" eru nú kunn,

og Charles H. Zimmerman frá Na-

tional Advisory Committee for Aer-

onautics virðist hafa gert fyrsta

módelið." „Ástæðan til þess, að

nefndin skilaði svo snögglega áliti

sínu i desembermánuði, var sú að

flugherinn veit, hvers konar fyrir-

bæri „hinir ffjúgandi diskar" eru og

óttast  þá  ekki — heldur  óttast  að-

eins, að upplýsingar um þá siist út."

*            *            *

Næstum því samtimis og þessi

grein birtist kom prófessor Giuseppe

Belluzo, frægur italskur eðlisfræð-

ingur, athyglisverðri skýringu á fram

færi við bandarísku fréttastofuna

„International News Service". Hann

kvaðst vcra cinn af þeim, sem

fundu upp „hina fljúgandi diska".

Hann hefði ásamt þýskum visinda-

mönnum og verkfræðingum unnið

að fullkomnun þessa vopns. Litið

þekkt þýskt vikublað „Die Strasse",

tók upp þráðinn og sneri sér til eins

Frh. á bls. Í4.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16