Vísnabálkur Sá, sem aldrei elskar vín. Sá, sem aldrei elskar vín, óð né fagran svanna, hann er alla ævi sín andstyggð góðra manna. Marteinn Lúter. Jón Thoroddsen eldri þýddi. Einhverju sinni hittust Álftnesingur og Dalamaður á förnum vegi. Tóku þeir tal saman. Ekki leið á löngu unz þeir voru komnir í hár sam- an og kastaði Dalamaðurinn fram stöku þessari: Þó að herrans handaflaustur hafi ei vandað skapnað þinn. Negldist á þig nógu traustur nes j amennskusvipurinn. Álftnesingurinn svaraði: Vel tókst drottni að gjöra gripinn gleymist ekki nokkur lína. . Dalamennsku sauðasvipinn sveið hann inn í ásýnd þína. Þegar hafmeyjan fræga á Tjörninni var sprengd í loft upp, orti maður nokkur sem kallar sig Glób. Ungar meyjar ylja sveinum oft þeim veita stundargaman. Nú er fallin fyrir einum frumlegasta borgardaman. * Héðan burt með friði eg fer fagnandi þó ég þegi; veit ég ei, hvort verra er í Víti eða í Teigi. Jón Þorláksson. IJrklippusafnfö LOKSINS EIGINIvíAÐUR hinnar heimskunnu frönsku skáldkonu Colette, M. Maur- ice Goudeket, er nú kvaintur tízku- drottninguruii fttmé. Itelong. Fýrir nokkru vildi hohum til það óhapp í samkvæmi a8 gleypa aridarbein, og var harui petjar fluttur á sjúkrahiis. Lesbók 18. marz '62. Send- andi: Unnur Brynjólfsdóttir. Abyg&ileg kona sem talar eirihverja ensfeu, óskast til barnagaszlu Og heimili&stárfa. TJppl. í síma 5254 eöa 3269, Kerlavíkur- : frugvelli. Morgunbl. 6. apríl '62. Send- andi: Laufey Pálsdóttir. Mokafli i landsteinum í Vestmannaeyjum. « Vísir, 10. febr. '62. Sendandi: Benedikt Viggósson. £á bejtí. e Það var búið að bæta einu Ijóni við í litla dýragarðinum í smábnum. Þetta var ungt og kraftmikið Ijón og vildi svo sannarlega láta bera á sér. Þegar gestir komu í dýra- garðinn, beit það í rimlana og öskra'ði af öllum lífs og sálar kröftum. Það var ekki laust við að það fyrirliti gamla Ijón- ið, sem var í nsta búri. En það var svo latt, að það nennti varla að geispa framan í áhorfendurna, heldur lá bara fram á lappir sínar og átti náðuga daga. En fyrirlitning unga Ijónsins varð að hatri, þegar umsjónarmaðurinn kom með maitinn. Hann fleygði þá stóru kjötlri í gamla og lata Ijón- ið, en unga og duglega Ijónið fékk bara tvo banana. Hvernig stendur á þessu? sagði unga Ijónið. Hér er ég búinn að standa og hamast við að skemmta áhorfendum og f bara tvo banana, en þú, sem hefur legið í leti í allan dag, frð heilt stórt kjötlri. Það er engin furða, sagði gamla Ijónið; þetta er lítill dyragarður og hefur ekki efni á að halda tvö Ijón, svo að þú ert bara skráður sem api hér. Leiðrétting. Þau mistök urðu í 13. tbl., að nafn einnar leikkonunnar á forsíðu misritaðist. Margrét kona Steindórs Hjörleifssonar er Ólafsdóttir en ekki Guð- mundsdóttir. Blaðið biður les- endur velvirðingar á þessum mistökum. Listin að skrifa bréf. Kæri Fálki. Á undan- förnum árum hef ég tekið eftir því, að bréfritun hefur farið mjög aftur. Menn vanda ekki bréf sín eins mikið og venja var til áður. Stíll bréf- anna er yfirleitt lágkúrulegur, alls konar ónefni og orð- skrípi koma þar fyrir, sem hvergi ættu að sjást. Gætuð þið ekki efnt til bréfa- samkeppni? Sá, sem skrifar bezta bréfið um eitthvert efni, fær einhver verðlaun. Virðingarfyllst. H. H. Svar. Þetta er mjpg athyglisverð tillaga. Blaöiö hefur nú ákveðið, að verðlauna beztu bréfin, sem berast l þennan þátt. Bréfið má ekki vera lengra en tuttugu línur í þessum dálki og skal fjalla um hvað sem er. Sá bréf- ritari, sem bezt kemst að orði, fær bókarverðlaun. Snögg veðrabrigði. -----------Þegar ég settist niður til þess að skrifa þetta bréf, var sólskin og blíðskapar- veður. Ekki hélzt það lengi við, því að bréfaskriftunum loknum, var komin slydda. í þessari slyddu varð ég svo að ösla með strákinn minn í bíó og um leið lagði ég bréf þetta ásamt krossgátunni, sem konan hafði verið að baksa við að ráða, í póst. Mér þykir mjög gaman að smá- sögunum, sem blaðið flytur og er alveg sannfærður um, að blaðið á eftir að verða mjóg vinsælt sakir þeirra.------------ M. J. Kvikmyndir. Kæri Fálki. Ég er einn þeirra manna, sem mikið yndi hef að því að bregða mér á bíó. Ég er dálítið vandlátur, en því miður er því oft þannig varið, að maður álpast inn á lélegar myndir. Mig langar því að vita hvort þið gætuð ekki öðru hvoru birt greinar um væntanlegar myndir og þá góðar myndir. Með vinsemd. Bíókarl. Svar. Þessu er til að svara, að við höfum nokkrum sinnum birt greinar um kvikmyndir og mun- um gera svo framvegis. Iþróttir. Heiðruðu herrar. ¦ Mér finnst ykkar ágæta blað ekki gera nógu mikið fyrir allan þann fjölda manna, sem hefur áhuga fyrir íþróttum. Birta mætti til dæmis myndir af frægum köppum í erfiðri keppni og yfirleitt myndir af íþróttamótum. Þið ættuð að gera ykkur Ijóst, að íþróttirn- ar eru mjög vinsælar og þá einkum flokkaíþróttirnar. Að vísu hafið þið birt greinar um íþróttir og þá miklu betur en önnur blöð. En hvað sem því líður ættuð þið að gera þetta. P. Svar. Þótt blaðið sé stórt er ekki unnt að fara að óllu eftir þvi, sem bréfritarar vilja. Við verð- um að fara meðálveginn. Vissu- lega munu því íþróttunum verða gerð einhver skil eins og öðru efni, sem lesndur hafa áhuga á. Blaðið vill taka fram að gefnu tilefni, að bréfritarar skulu gefa upp fullt nafn og heimilisfang undir bréf sín. Geta þeir þá óskað þess, að bréfið verði birt undir dul- nefni eða undir upphafsstöf- um. Blaðið getur því miður ekki birt kvörtunarbréf, nema fullt nafn fylgi. DOIMIMI Það er einn höfuð- kostur við að falsa á- vísanir: menn geta fengið frítt fæði og húsnæði. FALKI NN 5