Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fįlkinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fįlkinn

						ætlar að verða hamingjusamur og

eignast fjölskyldu sem hann sér far-

borða og  elskar eins og hafið.

En í landi er stúlkan að gefast upp

á því að bíða, hún verður að fara heim

svo að 'hún ofkælist ekki. Og í síðasta

sinn setur hún hönd fyrir auga og rýn-

ir út á sjóinn og myrkrið og aðgætir

hvort hún sjái ekki ljós. Og viti menn.

Þarna er Ijós. — Hann er að koma! í

fögnuði sínum gengur hún nokkur

skref áfram og rýnir aftur út í myrkrið.

En hún hefir stigið aðeins of langt, því

að bryggjan var á enda og gaf ekki

lengur fótum hennar stuðning.

Hún missti jafnvægið og hrapaði

niður í úfið hafið í sama mund og rám-

ur kveðandi skipslúðurs heyrðist utan

úr myrkrinu, togarinn var að kalla á

lóðsinn.

Litli báturinn fór á fullri ferð út úr

hafnarmynninu og fyrir framan lítið

stýrishúsið stóð einkennisklæddur

hafnsögumaðurinn og hélt sér í ávalan

húninn á dyrunum.

Togarinn var stanzaður þegar lóðs-

inn kom og lagðist að lunningunni með-

an lóðsarinn stökk. um borð. Svo hélt

hann áfram stíminu að hafnarmynninu,

öruggt   og  sígandi.

Fólk var tekið að streyma til hafn-

arinnar, það voru ættingjar og venzla-

fólk sjómanna, sem hafði frétt um töf-

ina á ferð togarans og kom því á rétt-

um tíma og þurfti ekki lengi að norpa

í kuldanum á hafnarbakkanum.

Og þegar gkipið lagðist að voru

hróp og köll og faðmlög á bakkanum

og sjóararnir stigu glaðir á land. En

það veitti enginn litla og óframfærna

drengnum við afturhlerann athygli,

það virtist enginn vera kominn til að

taka á móti honum. Hann skimaði í

allar áttir eins og hann væri að gá að

einhverju, en það þekkti hann enginn,

jafnvel skipsfélagarnir litu ekki á hann,

þeir voru allir að fara með sínu skyld-

fólki og kunningjum.

Svo loks, þegar allir voru farnir,

gekk hann á land og leit í kringum sig

eins og hann tryði ekki sínum eigin

augum — kom hún í raun og veru ekki

til að taka á móti honum. — En hann var

aleinn við höfnina með máfunum og

gamla karlinum, sem var vaktmaður

við togarann. Drengurinn rölti nokkra

hringi á hafnarbakkanum ráðvilltur

— kannske var hún veik. — Hann

ætlaði að fara til herbergis hennar og

og gæta að því.

Og hann rölti þunglamalega frá höfn-

inni, gekk vinstra megin eftir Skúla-

götunni og var svolítið valtur í spori

af óvananum að hafa fast land undir

fótum.

Mávarnir flugu þögulir fram hjá hon-

um, þeir voru hvítir eins og snjóflygs-

ur í myrkri hljóðrar næturinnar.

FALKINN EFNIR TIL

SKOÐANARKÖNNUNAR

VERÐUR

UNGFRÚ

ÍSLAND ?

Á næstu tíu síðum birtir FÁLKINN fyrstur blaða

myndir af öllum þátttakendum fegurðarkeppninn-

ar í einu. Með því að fletta þessum síðum, geta les-

endur virt fyrir sér fegurðardísirnar og vegið þær

og metið og gert upp við sig, hver þeitm finnst eiga

skilið að hljóta hinn eftirsóknarverða titil UNG-

FRU ÍSLAND 1962. Þegar lesendur hafa gert það,

býður Fálkinn þeim að taka þátt í skoðanakönn-

un um, hver hlýtur titilinn. Á blaðsíðu 38 er seðill,

þar sem lesendur eiga að skrifa nöfn þeirra fimm

stúlkna, sem þeir telja að skipa beri fimm efstu

sætin. Seðlarnir skulu hafa borizt FÁLKANUM,

PÓSTHÓLFI 1411,  innan þriggja vikna.

Óli Páll Kristjánsson, ljósmyndari, tók myndir

aí öllum stúlkunum, nema Kolbrúnu Baldvinsdótt-

ur, sem Jóhann Vilberg tók, og Önnu Geirsdóttur.

FALKINN

13

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40