Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fįlkinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fįlkinn

						húsið og steig inn í lögreglubifreiðiná,

sem hafði fært honum blöðin.

Hann hélt beina leið á lögreglustöð-

ina og sagðist vilja hafa tal af lögreglu-

fulltrúanum.

Á lögreglustöðinni var allt á tjá og

tundri. Lögregluþjónninn, sem var á

vakt, var í öngum sínum. Allt var fullt

af svörtum köttum — og síminn hringdi

stöðugt og skilaboð bárust um að fleiri

kettir væru á leiðinni. Tilkynningar um

svarta ketti lágu eins og hráviði á skrif-

borðinu hans, og hann taldi öruggt, að

í póstinum væru ekkert annað en bréf

um „þessi árans kvikindi", eins og hann

orðaði það.

— Jæja, þér hafið víst áreiðanléga

komizt í feitt, Sibley, sagði Hawley lög-

regluforingi. Ég fel yður hér með að

rannsaka  þessa  ketti.

Hann var furðu rólegur og næstum

glaðlegur á svip. Það var eins og steini

væri létt af hjarta hans, er hann sá að

Sibley var kominn inn í klefann þar

sem köttunum hafði verið komið fyrir.

—¦ Ég fel yður þetta kattamál, Sibley,

sagði hann snöggt. Þér þurfið ekkert

að  flýta  yður,   — þér  eigið   að  skoða

hvern kött nákvæmlega. Ég ætla aftur

á morðstaðinn eftir morgunverð og ég

skal láta yður vita, ef kötturinn skyldi

sýna sig þar.

Sam þakkaði honum og sendi lög-

reglubifreið eftir Lil Gillings, tólf ára

stúlku, sem var ein af kattarins allra

beztu vinum. Hún hafði leikiS sér við

hann, er hann var kettlingur, hafði

fylgzt með uppvexti hans og þekkti

hann gjörla. Hún hefði getað skrifað

ævisögu hans og sennilega getað komið

sögunni í sunnudagsblöðin.

Hún kom á lögreglustöðina í fínasta

kjólnum sínum, hvítþvegin og ósköp

sæt. Hún leit yfir kettina og sagði strax,

að hér væri Nigger ekki.

— Vinstra eyrað á honum er dálítið

visið sagði  hún.

Því næst gaf hún nákvæma lýsingu

á Nigger, og gaf í skyn, að hún væri

reiðubúin, að vera um kyrrt á lögreglu-

stöðinni og skoða alla ketti, sem þangað

kynnu að berast. Hún var einmitt að

hefja störf sín, hún hafði fengið kara-

mellur og flösku með einhverjum græn-

um vökva og strá, — er skilaboð komu

frá lögregluforingjanum.

—  Það hefir eitthvað skeð á morð-

staðnum, sagði lögregluþjónn nokkur.

Lögregluforinginn vill strax tala við

yður.

Hawley lögregluforingi var úti í garð-

inum, þegar Sam kom. Hann brosti

elskulega. —- Sibley, kattarleitinni er

lokið, sagði hann. Kötturinn er kominn

fram.

—¦ Er hann hérna? sagði Sam. Kom

hann af sjálfsdáðum?

—  Hann situr inni í eldhúsinu og er

að lepja mjólk.

Sam Sibley þaut inn í eldhúsiö.

Augu hans ljómuðu ekki lengur og hann

varð dálítið kindarlegur á svipinn, er

hann sá köttinn. Hann sat þarna hinn

ánægðasti og hringaði skottið utan um

sig og drakk mjólk sína með áfergju

og bersýnilega hafði hann litlar áhyggj-

ur af málningarklessunni á bakinu á

sér.

—  Eru nokkur fingraför í málning-

unni?  spurði  Sam.

—    Engin. En þar eru för eftir

gúmmíhanzka. Hvað snerti tilgáturnar

okkar þá held ég að við skiljum nokkurn

veginn jafnir, en kötturinn getur ekki

Kæri Astró.

Ég er fædd í Reykjavík ....

1935 er gift og eigum við tvö

börn. Maðurinn minn er fædd-

ur í Reykjavík.....Við höf-

um átt í töluverðum erfið-

leikum. Hann hefir lagt stund

á nám, en varð að hætta sök-

um fjárskorts. Ég veit, að ef

hann gæti lokið námi væri

hann á réttri hillu. Hvað

segja stjörnurnar um það.

Með fyrirfram þakklæti.

Guðný.

Svar  til  Guðnýjar:

Þið hjónin hafið átt í efna-

hagsörðugleikum nú undan-

farið og í korti manns þíns eru

þessar afstöður mikið betri

heldur en verið hefur að und-

anförnu. Ég er ekki frá því,

að eitthvað afgerandi eigi sér

stað í efnahagsmálum ykkar

í vil innan næstu fjögurra

mánaða. Ég veit að þið þekk-

ið eldri mann, sem er ykkur

tengdur og getur stutt ykkur,

ef þið leitið hans. Þið ættuð

því hiklaust að leita ásjár

hans og drífa svo í náminu;

aðrar leiðir get ég ekki séð

út úr þessu eins og er. Þrátt

fyrir eriðleika þína nú, þá eru

ýmis merki þess í korti þínu

að þú munir ekki þurfa að

kvíða því að verða efnalítil.

Venus í öðru húsi er bending

um góðan efnahag, ekki svo

að skilja að um hreinan auð

sé að ræða heldur talsvert

meira en almennt gerist. Ekki

er ég heldur frá því að hugur

þinn beinist nokkuð mikið inn

á þær leiðir og er svo sem

ekkert við því að segja, en

þú ættir einnig að hugsa um

fegurðina, því Venus þarna

gefur tilhneigingar til lista,

og næms fegurðarsmekks.

Merki sólarinnar í korti þínu

er Ljónsmerkið og veldur það

nokkrum metnaði til yfirráða

í eðlisfari þínu, og svo er

einnig um eiginmann þinn, og

er þetta einn sá þáttur sem

ykkur ber að vara ykkur á,

því ef báðir aðilarnir krefj-

ast yfirráða á heimilinu, er

alltaf hætt við sprengingu.

En ég geri ráð fyrir að allt

sé í lagi hjá ykkur í sam-

bandi við þetta því þið eruð

bæði fremur hæggerð og

hyggin.

í ellefta húsi korts þíns er

Merkúr og sólin. Ellefta hús

stendur fyrir vini og óskir

manns. Staðan þarna merkir

því ivni sem fást við nám og

bókmenntir og Sólin er bend-

ing um sterka vini, en þar

sem aðstaðan er ekki hag-

stæð, efast ég um að þú hafir

mikinn fjárhagslegan stuðn-

ing af vinum þínum og reikna

raunar fremur með að þú bíð-

ir alla jafna nokkuð tjón af

vinum þínum fjárhagslega

séð. Ég get því ekki gefið þér

aðra betri ráðleggingu í þess-

um efnum, en reyna að sjá út

hverjir eru raunverulegir vin-

ir þínir eða þeir sem ekki

hlaupa um leið og maður

hættir að ausa í þá mat og fé

og hinir, sem ég nefni óraun-

verulega vini, sem eru

hlaupnir um leið og þeir

hætta að hafa gott af manni.

Einnig bendir þessi aðferð til

að ýmsar vonir þínar og ósk-

ir munu ekki ná fram að

ganga sérstaklega þær, sem

eru tengdar bókmnntum

lestri og námi. Þessi málefni

eru því undirorpin nokkrum

hindrunum. Um langferðalög

er það að segja að þú ættir

ekki að leggja upp í þær, því

hætt er við að þig hendi

skyndileg óvænt óhöpp, sem

kunna að koma þér mjög

illa. Að minnsta kosti mundi

ég   ráðleggja   þér   að   leggja

aldrei mikið upp úr ferðalög-

um  til útlanda.

Ef við lítum á framtíðina,

þá er fyrsta afstaða, sem

verður milli Sólar og Satúrn

eftir tæp tvö ár. Hún bendir

til nokkurra heilsufarslegra

erfiðleika og einnig til þess

að þið hjónin þyrftuð að

vera aðskilin einhverra hluta

vegna um nokkurra mánaða

skeið.

Um 1968 er Sól og Nept-

ún í samstöðu, sem bendir til

stuttrar sjóferðar. Undir

þessari afstöðu er þér sér-

staklega hætt við að misskilja

aðra og lifa í heimi draumór-

anna, því Neptún er pláneta

þeirra. Þú ættir því ekki að

taka langdrægar ákvarðanír

eða ákvarðanir, sem eru bind-

andi fyrir þig til langs tíma.

Um 1974 er samstaða milli

Sólar og Venusar, sem bendir

til sérstaklega mikils ávinn-

ings í fjármálunum og efna-

hag ykkar. Ég hygg að með

því ári verði sérstaklega áber-

andi tímamót í efnahag ykk-

ar hjónanna og að upp frá því

fari allt að ganga sérstaklega

vel.

FALKINN

33

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40