Fálkinn - 30.01.1963, Blaðsíða 17
Skömmu eftir að Helga og Páll átt-
ust, lézt Þorleifur sýslumaður á Möðru-
völlum. Páll Jónsson og Ormur Sturlu-
son lögmaður, er átti Þorbjörgu Þor-
leifsdóttur, gengu ósleitulega í eignirn-
ar á Möðruvöllum og sölsuðu undir sig.
Ui'ðu af því mál mikil og beitti Páll
Jónsson harðlega lögkrókum og klók-
indum, og vann þar mikinn auð í bú
sitt. Að vísu voru þau Helga og Páll
vellauðug fyrir, þar sem Helga fékk
einn fjórða af eigum föður síns, Ara
lögmanns, og Páll átti stóreignir. En
mikið vill ávallt meira, og sannaðist það
hér áþreifanlega sem oftar. En auður
er sjaldan bætandi ást og samlyndi
ungra hjóna, og ekki sízt, þegar ein-
þykkni er rík á báðar hendur og til-
hliðrunarsemi til ráðstöfunar lítt til
staðar. Enda kom brátt á daginn með
Helgu og Pál, að auður þeirra bætti
ekki úr sambúðinni. Helga vildi ráða
eignum sínum sjálf, og seldi jarðir að
manni - sínum fornspurðum og ráðstaf-
aði fé sínu. En hann var fjárgæzlumað-
ur mikill og bráður til sundurþykkju,
ef út af bar um vilja hans um þau efni.
Þetta varð þeim því til sundurlyndis
— meira en góðu hófi gegndi — ásamt
fleiru.
Sambúð Helgu Aradóttur og Páls
Jónssonar varð æ erfiðari eftir því sem
lengur leið. Er mælt, að Páll hafi eitt
sinn ort til konu sinnar, eftir að hafa
átt við hana orðahnippingar nokkrar:
Framh. á bls. 29.
FÁLKINN 17