Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fįlkinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fįlkinn

						Þorsteinn  Thorarensen,

fréttastjóri Vísis.

Matthías Johannessen,

ritstjóri Morgunblaðsins.

Sigurður  Friðþjófsson,

fréttastjóri  Þjóðviljans.

þótt vissulega mætti sitthvað

tína til:

Hafís lagðist að Norðurlandi

í ofanverðum marzmánuði,

fyllti firði og flóa og lokaði

siglingaleiðum. Sumir nefndu

hann mesta hafís í hálfa öld og

þótti þetta að sjálfsögðu tíðind-

um sæta; ýtti ögn við mönn-

um í heimilishlýju þeirra og

velsæld.

Er sumri tók að halla fluttu

blöðin fregnir af mesta áfengis-

smygli, sem vitað er um. Mörg-

um sæmdarmanni þótti þá —

og ekki að ástæðulausu — sem

víxill heiðarleikans í þessu

landi hefði endanlega verið af-

sagður.

Fréttin um Skarðsbók kom

skemmtilega á óvart, þótt þeir

sem við blöðin starfa vissu

hvað klukkan sló nokkru áður

en kaupin voru kunngerð. Hún

er án efa það sem mestan fögn-

uð vakti af öllu þvi mikla

fréttamagni, sem blöðin létu á

þrykk út ganga á árinu.

Sumum kann að virðast bros-

legt að gefa sýknt og heilagt

út ávísanir á aldagamla frægð

©g menningu. En hvað annað

skyldi vera vænlegri hvatning

til nýrra afreka og megna að

forða okkur frá umkomuleysi

í allsnægtum?

Vísir:

MÉR finnst að bókauppboðið

í London, þegar Skarðs-

bók var seld hafi verið mesta

frétt ársins 1965. Víst hefur

Sigurður Benediktsson selt

margar merkilegar bækur á

árinu, en ætli Skarðsbókar-

salan verði þó ekki í sérflokki

á því sviði. Hugsið ykkur 4,3

milljónir króna fyrir þessa bók,

sem þó er tiltölulega ómerkileg

móti öllum dýrgripunum sem

við „eigum" enn í Kaupmanna-

höfn. Dýr skyldi þá Sæmundar-

Edda.

. Ef til vill. minnist ég þessa

atburðar, af því að ég átti áður

svo margar skemmtilegar pers-

ónulegar minningar frá hand-

ritamálinu, dvöl í Árnasafni og

viðræður við sjálfan erkióvin-

inn Bröndum-Nielsen í forsal

Konunglegu bókhlöðu.

En þó verður sala Skarðs-

bókar ennþá stærri frétt vegna

þess, að hér var svo mikið i

húfi, ekki aðeins skrælnuð

skinnblöð eða nokkrar milljón-

ir krória, heldur var hér teflt

um heiður íslands. Gat það ver-

ið að íslendingar létu á tímum

þegar síldargróðinn hrúgast

í land, þetta eina tækifæri ald-

anna ónotað til að verða hæst-

bjóðendur, þegar þegar eigin

frægð og virðing yrði lögð

undir hamarinn.

Ég get sagt það hér, að það

var talsverð spenna og eftir-

vænting ríkjandi, þegar náJg-

aðist hádegi þennan dag og

við biðum eftir símtalinu frá

London. Lokunartími blaðsins

eða „deadline" eins og það

er kallað var kominn, en gat

ég nokkuð annað gert, en

að biðja menn að halda öllu

opnu. Og loks kom samband-

ið, það var ágætur vinur Vísis,

Björn Björnsson kaupmaður

í London, sem margsinnis hef-

ur sýnt okkur, að hann er bet-

ur búinn en margur blaða-

Framh.  af  bls.  37.

Morgunblaðið:

MÉR   koma   fáir   atburðir   i

hug sem eru stórum merk-

ari en aðrir. Ég held að 1965

sé einna helzt ár lítilla inn-

lendra atburða sem þó hafa

sumir hverjir verið blásnir upp

eins og stórtíðindi væru. Marg-

ar slíkar sápukúlur eru nú-

þegar teknar að hjaðna.

Fundur Vínlandskortsins er

auðvitað eftirminnilegur at-

burður sem snertir sögu okk-

ar og afgreiðsla handritamáls-

ins var mikill gleðiauki öllum

íslendingum, en vafasamt að

telja það innlendan atburð.

Aftur á móti var fundur Norð-

urlandaráðs í Rvík. snemma

á árinu tímamótaviðburður í

sögu okkar og afstöðu til frænd-

þjóðanna. Sem blaðamanni

þótti mér hvað skemmtilegast

að fylgjast með þessu merka

þinghaldi. Það var örvandi

framlag til norrænnar sam-

vinnu sem ég tel við eigum að

hlúa að og efla eftir megni.

Samneyti og vinakynni við

Norðurlandaþjóðir eru heil-

næmt mótvægi við stórþjóða-

áhrifum hér á landi.

Óvenjumargir svipmiklir og

eftirminnilegir samtímamenn

hafa látizt á þessu ári, ég

nefni aðeins andstæðurnar séra

Bjarna Jónsson og prófessor

Dungal, sem þó áttu kannski

meira sameiginlegt en flesta

grunar.   .

En kannski verður mér hvað

minnisstæðust leitin að Jóhanni

Löve, ekki sízt fyrir þá sök

hve vel tókst tii í lokin. Ég hef

persónulega reynslu fyrir því

— hana fékk ég nú skömrou

fyrir hátíðarnar — að forráða-

menn lögreglunnar í Reykja-

vík og slysavarna eru í $enn

hugljúfir drengskaparmenn og

frábærir skipuleggjendur, er

voða ber að höndum. Um

leið og ég sendi Jóhanni Löve

og fólki hans jólakveðjúr minn-

ist ég þeirra manna sem á erfið-

um tímum í svartasta skamm-

deginu hafa sannfært mig um

að fórnarlund og náungakær-

leikur eru enn meginstrengur

í okkar annars kvíslóttu samtið.

Sú persónulega reynsla þykir

mér markverðust niðurstaða

ársins  1965.

Reykjavík,   23.   des.   1965.

Matthías Johannessen.

Iinti:

TjAÐ sem ég myridi segja að

* væri stærsta fréttin var

stöðvun síldveiðanna í mai, er

síldarskipstjórar sigldu skip-

um sínum til hafna til að mót-

mæla síldarverðinu og bráða-

birgðalögunum um skattlagn-

ingu bræðslusíldar.

Fyrst og fremst þá kom þessi

frétt svo mjög á óvart. Að vísu

vissu menn að sjómenn og skip-

stjórar voru mjög óánægðir

með þessa verðákvörðun, en ég

hugsa að fæstir eða engir hafi

búizt við að nást myndu slík

samtök um mótaðgerðir, þar

sem skipin voru dreifð úti á

miðunum.

Þessar mótmælaaðgerðh báru

svo þann árangur að ríkis-

stjórnin var knúin til að falla

frá bráðabirgðalögunum og sjó-

menn fengu nokkra leiðrétt-

ingu mála sinna.

Nú getur auðvitað verið að

gerzt hafi stærri atburðir, en

þeir áttu sér þá langan aðdrag-

anda og komu fréttir af þeim

ekki eins á óvænt og þessi frétt

um stöðvun síldveiðanna.

FALKIN

N     3

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44