HANN ER IÐINN VIÐ KOLANN ROGER VADIM, sá hinn sami og gerði Brigitte Bardot að eins konar evrópskri Monroe, hefur krækt í þriðju yngismeyna Jane Fonda dóttur brezka leikarans Henry Fonda. Hjónin eru sem stendur í Róm, þar sem verið er að taka kvikmynd með Jane í aðalhlutverki. Barbarella heitir myndin, en framleiðandinn Dino di Laurentiis. Leikstjór- inn heitir hins vegar Vadim að eftirnafni. Þetta verður fyrsta verk þeirra hjóna á kvikmyndasviðinu og allir eru að sjálfsögðu ákaflega óþreyjufullir eftir að sjá árangurinn. Hvort sem Jane á eftir að verða önnur B. B. eða ekki, þá virðist enginn vafi leika á um hjónabandssæluna, ef marka má glaðleg andlitin á myndinni, sem vel á minnst er af Vadim og þriðja hráefninu sem hann gengur að eiga. GUISEPPINA OG SANTÍNA Á GÖNGUFERÐ Þær voru samvaxnar í 6 ár og á fræðimáli voru þær nefndar síamskir tvíburar. ítalskir læknar frömdu á þeim vandasama aðgerð í fyrra og tókst að skilja telpurnar að, þannig að báðir lifðu. í fyrstunni kom hin óháða tilvera þeim hvo*ri fyrir sig dálítið spánskt fyrir sjónir og þær hafa orðið að Ieggja talsvert að sér til að læra að lifa sitt í hvoru. lagi. Foreldrar þeirra Guiseppinu og Santínu búa í ítölsku þorpi, þar sem þau stunda garðyrkjustörf. Á myndinni eru stúlkurnar á gönguferð, en móðir þeirra fylgist með. PHILIPS JAPNGÓÐ PYRIR TON 00 TAL GERÐ PYRIR BATTERI OG VENJULEGAK STRAUM - llo/22o SPOLURNAR SETTAR I MEÐ EINU HANDTAKI - (MAGASIN) HANDHÆG - ÞÆGILEG - SKEMMTILEG SKÖLAVORÐUSTTG 8 SIMI 18525 FALKINN 25