Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fįlkinn

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fįlkinn

						á bezta aldri, lífsþyrstir og nýsloppnir

úr háska... Halifax varð eins konar

Sódóma og Gómorra þegar verst lét.

Fyrir ofan höfnina var fullt af sígauna-

tjöldum, og þar sátu kerlingarnar og

spáðu í óða önn fyrir sjómönnunum.

Framtíðin fór eftir því hve vel var

borgað — fyrir einn dollara var útlitið

engan veginn bjart, fyrir tvo átti allt

að ganga sæmilega, en fyrir fimm doll-

ara myndi gæfan fylgja manninum

alveg til stríðsloka. Margir högnuðust

á því óeðlilega ástandi sem ríkti þessi

ár."

Það hefur margt gerzt á hafinu

„Varst þú aldrei hræddur við dauð-

ann?"

„Nei, ég held að mér sé óhætt að

fullyrða, að ég hafi ekki verið það, en

þó horfir málið auðvitað öðruvísi við

þegar maður á konu og börn heima —

það er frekar þeirra vegna en sjálfs sín

sem maður reynir að bjarga sér. Ég

man, að mér var alltaf illa við gúmmí-

fötin sem við vorum látnir sofa í; þau

voru blásin upp, og í þeim átti maður

að vera öruggur um að geta lifað marga

daga í sjónum, en þótt þau hafi ýms-

um hjálpað er ég viss um, að þau hafa

kvalið lífið úr miklu fleirum sem aldrei

fundust.  Ég   hefði  ólíkt  heldur  viljað

deyja undir eins en þurfa að velkjast

í þeim sólarhringum saman — það hef-

ur margt gerzt á hafinu, og af öllum

þeim bátum og flekum sem hafa flot-

ið þarna um með hálfdauða og dauða

menn veit enginn hve mikill hluti hef-

ur týnzt. Menn voru afskrifaðir eftir

vissan tíma ef þeir komu ekki fram.

Einu sinni vorum við svo lánsamir á

Lagarfossi að finna . bát með þremur

brezkum flugmönnum. Það var laugar-

daginn fyrir hvítasunnu 1941 og við

vorum þrjú til fjögur hundruð mílur

frá Reykjavík; ég var uppi í brú að

þurrka móðuna af stórum kíki og til

að prófa hann á eftir leit ég út að sjón-

deildarhringnum. Þá sá ég rauða

rakettu í fjarska. Ég flýtti mér að vekja

skipstjórann og segja honum frá því,

en við sigldum hálftíma án þess að finna

nokkurn hlut. Loks sendum við mann

upp í mastur, og hann kom auga á bát-

inn. Okkur tókst að koma kastlínu í

hann, en mennirnir voru svo máttfarn-

ir, að þeir gátu ekki tekið á móti henni.

Á endanum komst samt báturinn upp

að síðunni, og við náðum mönnunum

um borð. Þeir voru alveg að þrotum

komnir, höfðu verið ellefu daga í bátn-

um. og þetta var seinasta rakettan

þeirra. Ekki vildu þeir segja mikið um

sín leyndarmál,  en þóttust hafa orðið

fyrir árás og tapað af flugvélamóður-

skipinu, af því að tækin hefðu verið í

ólagi, séð svo bátinn á floti og komizt

upp í hann. Þetta var tómur tilbúningur

— í raun og veru höfðu þessir flugmenn

tekið þátt í orrustunni þegar stærsta

herskip Þjóðverja, Bismarck var skotið

niður. og það voru þeir sem vörpuðu

sprengjunni sem réð úrslitum um enda-

lokin."

„Ja, þeir voru aldeilis heppnir, að

þú skyldir þurfa að pússa þennan kíki."

„Feigir hafa þeir ekki verið hvað

sem öðru líður. En við fréttum seinna,

að það hefði orðið að taka báða fót-

leggina af einum þeirra og allar tærnar

af öðrum. Flugstjórinn var sá eini sem

slapp óskaddaður."

VAR ekki erfitt að fara aftur að lifa

normal lífi eftir stríðið og aðlaga

sig breyttum kringumstæðum?"

„Jú, að ýmsu leyti. Mér fannst ég

einkennilega sljór lengi á eftir, líkt og

hlutirnir snertu mig ekki. Mér var

sama um allt og hvorki gladdist né

hryggðist verulega yfir neinu. En

smám saman jafnaði það sig, og þá

var eins og birti eftir dimma þoku.

Maður fór aftur að hugsa á jákvæðan

hátt um lífið og framtíðina."

NIÐURLAG  f NÆSTA BLAÐI.

KLÆÐIST FÖTUM

FRÁ OKKUR

FILMUR QG VELAR   S.F.


Margar gerðir af

sýningartj öldum

Sýningarlampar

Flestar gerðir

af litf ilmum

35 mm—8 mm

svart-hvítar

allar stærðir

8 mm filmuskoðarar,

límarar — lím

ÁRS ABYRGÐ

Margar gerðir

af ljósmyndavélum

8 mm tökuvélum

8 mm — 16 mm — 35 mm

70 mm sýningarvélum

fyrir heimili,  skóla,

félagsheimili og

kvikmyndahús.

Transistor ferðatæki og

viðgerðaþ j ónusta

[Leiðbeinum meðhö'ndlun

á sýninga- og

tökuvélum

8—16 mm filmuleiga

Viðgerðir- og

varahlutaþjónusta

Fullkomhasta

litskuggamynda-

sýningavélin

með innbyggðu

bendiljósi.

EINKA UMBOÐ

FILMUR OG VÉLAR   S.F.

Skólavörðustig 41. Sími 20235.

FALKI

NN     33

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44