Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Blaðsíða 8

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Blaðsíða 8
8 1. des. blaðiö Spjallað við Guðmund Björgvinsson myndlistarmann Guömundur Björgvinsson er ekki viö eina fjölina felldur. Hann fæst við að semja lög, skrifa sögur og mála listaverk. Hann var einmitt önnum kafin við að undirbúa sýningu á Kjarvals- stöðum er ég knúði dyra hjá honum og rabbaöi við hann um viöhorf hans til listarinnar og fræddist um hvernig sé að vera listamaður að atvinnu en Guðmundur reynir aö draga fram lifið á sköpunargáfunni einni saman. Guðmundur hefur aö mestu skólað sig sjálfur i mynd- listinni en lagöi um tlma stund á myndlist, mannfræöi og sálar- fræði i Californiu. Hvernig gengur að lifa á listinni Guðmundur? Eftir atvikum vel. Þau tvö ár sem ég hef eingöngu fengist við þetta hef ég yfirleitt haft nóg að éta og veriö laus við þá sjúkdóma sem orsakast af næringarskorti. Hins vegar hefur mér ekki tekist að koma mér upp sundlaug eða sauna enda á ég hvorki kjallara né garö. En i þesum bransa lærir maður fljótt að stilla kröfum sinum á lifsins þægindi I hóf og ég er ánægður ef ég fæ 200 grömm af súkkulaði á dag og get komist i bió að minnsta kosti tvisvar i viku. Helduröu að þú náir þvi að hafa verkamannalaun i kaup á mánuöi? A árs grundvelli er ég sennilega með lágmarks verkamannalaun. En þetta er svipaö og að spila i happdrætti. Summurnar koma meö mjög löngu millibili og maður veit aldrei hvenær maður fær næstu summu, peninga- summu. Hvaða þjóöfélagshópur kaupir verkin aðailega? Það er sennilega enginn ákveðin en allavega ekki öreigar. Með öðrum orðum, þeir sem eiga varla fyrir kringlum geta náttur- lega ekki keypt listaverk. Þeir sem að geta keypt listaverk eru fyrst og fremst þeir sem eru f hæstu launaklössum, svindlarar, braskarar og glæpamenn. (Guðmundur hlær dátt). Hvaö ræður veröiagningu hjá listamönnum almennt? Nú er t.d. ekki hægt að kaupa verk á 10 þúsund. En þú getur a.m .k. ennþá keypt bók á 10 þúsund. Já, það sem ræður verð- lagningu á listaverkum er fyrst og fremst aö þeir sem telja sig almennilega listamenn eru þaö kröfuharðir á sjálfan sig aö þeir láta ekki frá sér hvað sem er. Þannigaðþauverk sem þeir gera á ári eru kannski ekki það mörg eðaeru réttarasagtþaöfá að.þeir verða að verðleggja hvert verk mjög hátt til þess að geta haft lágmarkstekjur. Þar fyrir utan geta þeir aldrei selt öll verkin sem þeir gera. Þannig að þetta virðist vera eina leiöin til þess að þeir geti haft miölungstekjur. Ef þeir fara að selja hvert verk á 10 þúsund þá þyrftu þeir að vera með algjöra fjölda framleiöslu. Verðlagning verður aö vera svona vegna rikjandi ástands. En nú eru grafik myndir t.d. fjöldaframleiddar og kosta þö drjúgan skilding. Þaö má segja að graflk myndir brúi bilið míli eftirprentanna og frummynda. Ég fæst ekki viö gerð grafikmynda en gæti trúað að stykkið af þeim kostaöi frá 60 til 100) þúsund a.m.k. Hvaö væri hægt að gera til þess að allir gætu eignast listaverk? Eina leiöin sem ég kem auga á er að listamenn séu á föstum launum hjá rikinu og útbýti verkum si'num meöal lýðsins. Það mætti hugsa sér skipulagiö þann- ig að það væri einhvers konar stofnun sem tæki við listaverkum. Þangaö gætu siðan allir lands- menn labbaö meö vissu míllibili og hirt hver sitt listaverk aö eigin vali. Þannig ættu allir jafna möguleika á að eignast listaverk. Og það væri fyrst og fremst smekkur manna sem mundi ráða valinu en ekki afbrigðilegar hvatir eins og fjárfestingahug- leiðingar eða eitthvaðslfkt. Brask ætti að varða viö lög. Ég er náttúrlega ekki hlynnjttir þvi að það sé settur kvóti á listamenn þar sem þeir veröi að framleiða ákveöinn fjölda á ári. En svona fyrirkomulag má alls ekki hafa i för með sér að rfkið fari að skipta sér af þvi hvað sé gott og hvað sé lélegt I sambandi við listaverk eins og i Sovétrikjunum. Eru listasöfn ekki nokkuð úrelt fyrirbæri I núverandi mynd? Er rétt að loka listina inni á söfnum? Væri ekki hægt að hafa sama form á þeim og á bókasöfnum til að hinn almenni borgari geti fengiölánuö listaverkum ákveðin tima til að njóta þeirra. Þannig næði listin ef til vill best til alþýöunnar, eða hvað? Þá er sú hætta fyrir hendi að verkin verði eyöilögö. Þetta eru oft viökvæmir gripir sem þola illa mikinn djöfulgang og ekki nema eitt eintak til af hverju verki. Bækur fara hins vegar sjaldan undir færri en þúsund eintök. Að lána listaverk er svipað og að lána Guðbrandsbibliu af bóka- safni. Er það ekki eyðiiegging á lista- verkum að láta þau liggja I kössum i geymslum og kjöllurum? Það nýtur enginn - verkanna á meðan. Ég er hlyntur þvi að listaverk séu hengd upp i opinberum byggingum og allsstaöar þar sem almenningurámikiðleið um. Það er að segja að hiö eiginlega Lista- safn Islands hangi á þeim stöðum þar sem fólk er messt aö vasast dags daglega. Mér skilst að búiö sé að setja lög um að allar opin- berar byggingar og ég held jafn- vel fleiri veröi skyldaöar til þess að kaupa listaverk fyrir ákveðna prósentu af byggingarkostnaði. Mér list stórvel á þessa þróun. Siðan má náttúrlega beina fólki á söfnin. Þau eru i sjálfu sér ágæt svo langt sem þau ná. Miöaö við núverandi ástand er raunveru- lega eina leiöin fyrir almenning til þess aö njóta góðra listaverka aö fara á sitfn eða sýningar. En þá kemur timaleysiöhjá t.d. verkafólki sem vinnur myrkr- anna á milli og hefur ekki tfma né þrek til að fara á söfn, f leikhús, i bió eða að stunda menningarlifið á einn eða annanhátt. Aukþess er það takmörkuð upplifun sem þú hefur af þvi að fara á söfn miöað við það að njóta listarinnar á heimili eða á vinnustaö. Ég hef hér mjög góöa hugmynd i sambandi við t.d. Listasafn Is- lands, það sem'þeir ættu að gera er að fara stöðugt með myndir á vinnustaöi og hengja upp þar. Hafa fólk i þvi aö hengja upp myndir I einn mánuð þarna, ein- hvernákveðinnfjölda af myndum siðan annað I staöinn eftir ákveð- inn tima, færa þetta á milli vinnu- staða, þannig aö fólk umgangist þá list sem Listasafn Islands á i sinum fórum, þannig að þetta sé ekki I kössum einhvers staöar. Hvert sækir þú mynd- efnið? Ég sæki myndefnið f manninn eða rétara sagt Homo Sapiens. Ég mála manninn i ýmsum stell- ingum. Af hverju málaröu einungis manninn? Af hverju ekkináttúru- myndir? Þaðer vegna þess aö maðurinn stendur mér nær heldur en ein- hver fjöll Uti i rassgati. Þetta er mér langtum áþreifanlegra. Ég umgengst fólk. Ég hef langtum meiri áhuga á fólki en nokkru öðru. Að visu hef ég ekkert á móti þvi aðfara út úr bænum einu sinni til tvisvar á ári og kikja á fjöll og skoða þetta. En það er fyrst og fremst maðurinn sem ég hef áhuga á. Enda sit ég oft dögum saman á bekk I Austursfræti og glápi á þetta fyrirbrigöi. Það er náttúrlega það sem maður er fyrst og fremst að vasast 1 allan sólarhringinn. Það eru samskipti við fólk, mannleg samskipti. Það er náttdrlega ekkert eölilegra en að maður tjái sig um einmitt þetta fyrirbrigöi. Ég sé hér abstraktmyndir i roðum. Er þetta nýr póll? Þetta atvikaöist þannig að ég er nú búin að vera í raunsæis- myndum núna nokkuð lengi, 2—3 ár. Þetta er mikil einbeiting i þessu. Þetta er eins og að dansa jafrivægisdans á h’nu Maður verður aö halda ákveðnu striki og passasig að detta ekkiUtaf. Mikil einbeiting og það fer gifurleg orka í þetta, og smám saman safnast upp geysileg spenna, maður verður mjög spenntur og streita safnast fyrir út af þessu. Smám saman skapast þessi þörf hjá mér til þess að fá algjöra útrás sem er algjör andstaöa við þetta, þessa einbeitingu og hnit- miðun. Og þá kom þetta fram á sjónarsviðiö. Þetta eru mjög hröð vinnubrögð, eins og sprenging. Þegar maöur málar raunsæis- myndir þarf þetta aö vera svo nákvæmt. Þaö er aö segja öll hlutföll nákvæmlega unnin. Hitt er svona nokkurn veginn óbeislað, fer i allar áttir og er mjög óformfast. Þó að maöur sjái kannski iikama eða likama- stemmingu eða form sem minna mann á líkama, fólk, þá er þetta óformfast. Þetta er eins og upp- leystur flkami. En aftur á móti öfugt I raunsæismyndum. Þar eru allar linur mjög hreinar og skarpar og allir skuggar nákvæmlega út reiknaðir og fyrirfram ákveðnir. Pétur Hafstein Lárusson Hinir sérfróðu. Kryf ja til mergjar vandamál samtímans rína i: flöktandi unglinga kúgaðar konur geðklofa dópista. Hella upá könnuna spaklegum hugmyndum. Vitna i skærasta vandræðaskáldið í tískuheimi antitiskunnar. Taktfast slær diskóið á óliklegustu stöðum. Pétur Gunnarsson Úr ljóðabókinni „Splúnkunýr dagur” og þú verkakona hver hugsar nokkurntíma um þig enginn húsmæðraþáttur talar til þín og enginn „fyrirmyndarkonuþáttur" f jallar um þig enginn gefur þér síðan kjól og dansar við þig vals biómyndirnar eru ekki um þig draumar þinir fengnir að láni þitt hlutskipti er slor og klám börnin þín vitlaust hirt ó þú sem sefur ekki fyrir tómu veski þú sem fyllir tossabekkina er ekki þinn vitjunartími kominn? leggðu frá þér þorskinn tvíhentu hnífinn barki þjóðfélagsins öskrar

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.