Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Eintak

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Eintak

						xxu

Það var eitt sinn um miðnæturskeið aö Jón bóndi Jónsson

rumskaöi f rúmi sínu,  nokkru eftir að hann hafðrtest blund.

Hann tók að hugsa um konu sína,  sem hvíldi við hlið honum,

úfin og ljót„     Þau voru orðin nokkur,   árin sem hann hafði

verið bundinn þessari ofríðu kerlingu,  og hversu margar voru

þær þá ekki orðnar,  hinar árangurslausu tilraunir hans til

að gera henni barn.     Ekki þar fyrir,  hann mátti vera feginn

að hafa ekki fyrir ómegð að sjá.     En var það ekki drottins

ætlan að af hjónaböndum hlytust litlir angar,  sem yxu upp

og yrðu að mönnum með tíð og tíma,

Háværar stunur glumdu um svefnherbergið og frúin velti

sér með miklum rassaköstum yfir á hina hliðina.     Jóni Jóns-

syni flaug í hug hvort hún Búkolla sín mundi nú ekki komin

að því að beiða.     Að hugsa sér annars allar þær fögru kven-

persónur,   sem hann hafði hafnað með því að giftast henni

Gunnu.     Hvílíkur munur væri nú ekki að hafa við hlið sér í

rúminu mátulega grannan og snoppufríðan konubelg að gamna

sér við.     Eins og til dæmis hana litlu ráðskonuna f vega-

vinnuflokknum,  sem hann hafði verið í hérna um árið.    Það

var nú ekki frítt við að hún gæfi honum undir fótinn,  þótt

verkstjórinn hefði verið fljótari á sér inn undir pilsin

hennar.     Jón Jónsson hugsaði um að í sporum verkstjórnas

hefði hann getað átt margar yndisstundir„    Hún Gunna hans

var orðin svo feit að honum varð erfitt um vik.    Svo var

hún líka orðin svo dauf upp á síðkastið,  vildi helzt fara

að sofa undir eins og hún var skriðin upp í á kvöldin.

Stór maðkafluga sveimaði um herbergið.     Hún hnitaði

nokkra hringi yfir höfðalagi hjónarúmsins og settist loks

á útblásið nef frúarinnar.     Jón Jónsson horfði eins og í

leiðslu á fluguna á nefi konunnar.    Hann var með hugann

niðri í svefnpoka ráðskonunnar góðu.    Einum óx ásmegin

undir sænginni,  en kona Jóns Jónssonar varð ekki vakin

til óra bónda síns.     Maðkaflugan hafði yfirgefið nef hennar

og hún svaf nú værar en áður.

x x x x x

Þegar Jón Jónsson vaknaði var kominn nýr dagur.     Frúin

svaf enn og lá á grúfu með hausinn undir sér.     Það snörlaði

í nösum hennar og yfirsængin hófst og hné í takt við

svefnhljóðin.

Jón Jónsson vippaði sér fram úr rúminu og tók að tína

á sig spjarirnar,     Hann var ofurlítið ringlaður eftir næt-

ursvefmnn og virtist dálítinn tíma efins um hvor fótur

tilheyrði hvorri buxnaskálm.     Að lokum var þó maðurinn full-

klæddur og gekk fram á baðherbergið.     Þar losaði hann lík-

ama sinn við nætursafnið,  og tók síðan að tygja sig til

mjalta.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28