256 BERT BRECHT HÚSAMÁLARINN HITLER. Húsamálarinn Hitler hrópaði: Land mitt, ég sé fyrir því! Og málningu hrærði hann í miklum dalli og málaði allt þýzka húsið á ný. Allt húsið, efst sem neðst, á ný. Húsamálarinn Hitler hrópaði: Sjá, þetta er nýbygging! Og göt og skellur og glompur allar málaði hann yfir í krók og kring. Málaði' allt skíttið í krók og kring. Æ, herra málari Hitler, i»«i»-j«* þeir hefðu víst fremur þurft lálirrn þar. Því óðar en rigndi ögn á húsið skein aftur í sömu glompurnar og allan skítinn, sem undir var. Húsamálarinn Hitler hugsaði talsvert um litabland, og af því honum var hleypt í verkið þá hefir hann bíað út sitt land, þrælslega útbíað Þýzkaland. id