haldssama páfastól, og bókmenntir þessara fasistísku andans garpa eru að mestu, fyrst þeir eru nú einu sinni sjálfir öreiga að skapandi hugmyndum, sóttar aftur í fornrómverska rithöfunda, eins og Horatius og Virgil. Um listastefnu svartstakkabræðranna norður i Ger- maniu er ekki hægt að leiða fram dómbærara vitni en þeirra menningarlega æðstaprest, dr. Göbbels. Hann kemst þannig að orði: Listin er frjáls og á að vera frjáls. Reyndar með einum fyrirvara! Listin verður að binda sig við ákveðnar siðferðislegar, póli- tískar og lífsskoðunarlegar grundvallarreglur, sem eru nú einu sinni fyrir fram gefnar og án hverra hið þjóð- ernislega samfélag verður að teljast óhugsandi." Það þýðir á alþýðlegu máli: Listin er frjáls að öðru leyti en því, að hún verður að sættast á að láta hlekkja sig við hakakrossinnr Þetta áminnzta frelsi kemur fram i því, að flestir mikilhæfustu rithöfundar, hljómlistar- menn og málarar Þýzkalands hafa verið reknir í út^ legð, aðrir hnepptir í þrældóm fangabúðanna, en sumir myrtir, eins og hinn byltingarsinnaði rithöfundur Erich Muhsam. Það kemur fram i því, að blóminn af bók- menntum Þýzkalands siðmenningarinnar hefir verið brenndur á báli, að bókasöfn einstaklinga og opinberra stofnana hafa verið tæmd að því verðmætasta, sem þar var að finna, að listasöfnin hafa verið hreinsuð" að verkum þeirra síðari tíma málara, sem helzt höfðu eitt- hvað til brunns að bera. Að öll frjálslynd bókaforlög og listafélög hafa verið leyst upp, leikflokkar og söng- kórar verkamanna bannaðir. Og loks i þvi, að kunn- áttusnauðir, skriðandi fúskarar hafa verið settir i stöð- ur þeirra listprófessora, sem nú sitja í fangelsi eða orð- ið hafa að flýja land. Kyn og sál, blóð og mold það eru hin vísinda- legu viðfangsefni nazistanna, goðsagnir og dulræna, for- lög og töfratrú viðfangsefni hinnar æðri heimspeki þeirra. Siðfræði þeirra kemur fram i orðum Speng- 293