þeim göfuga tilgangi, að temja öfl hennar til þjónustu við óslitna, friðsamlega menningarþróun? Öll afturhaldssinnuð öfl heimsins vaða nú uppi í blygð- unarlausri nekt, allri tækni yfirrdðastéttanna er beitt af hinni ægilegustu ósvífni og grimmd, og síðast en ekki sízt, öll heilbrigð rök mannlegrar skynsemi eru vægðar- laust fótum troðin af sefasjúkum, trúrænum fullyrðing- um forhertra blekkingamanna. Það er þvi ekki aðeins hróp vort, það er hróp allra stríðandi lýða, það er hróp menningarinnar, hróp framtíðarinnar, þegar vér skorum á Islendinga, og þá fyrst og fremst íslenzka menntamenn, sem hafa yfir tækni þekkingarinnar að ráða, að ganga nú heils hugar til liðs við málstað vorn, skorum á þá,að þurrka út allar smávægilegar mótsetningar, standa einlægir og víðsýnir saman til varnar þeim verðmæt- um, sem unnizt hafa, og rísa til nýrrar sóknar á hinum andlega vettvangi, svo Ijóslifandi sóknar, að öll íslenzk alþýða hrífist með í sigurvissum eldmóði, svo óstöðv- andi sóknar, að hið formyrkvaða lið afturhalds og fas- isma fái þar enga rönd við reist. Sýnum öllum heimi, að á Islandi takist að vinna með áhlaupi andans, það sem í öðrum löndum hefir kostað áhlaup byssustingjanna, eld, blóð og ósegjanleg- ar þjáningar! Rísum til órjúfandi samfylkingar um mál- stað fólksins, málstað mannsins, eins og vér skynjum hann fegurstan í hugsjón vorri og framtíðarsýn! S