HJALMAR GDLLBERG HAUSASKELJASTAÐUR. I. LÝÐURINN. Sjá þjófa og ránsmenn þanda þrjá á krossins tré, með sundurkramin kné! Lít hvinn til beggja handa! Sá hægri greip fé, sá vinstri veigar góðar og viðsmjör náungans. Á milli hins og hans ber Þengil Júðaþjóðar með þyrnikranz, sem mánann banableikan, er bófaflakki ann. Lít sálnaþjófinn þann! Frá föður soninn sveik hann, frá svanna mann, frá manni tók hann maka, frá móður börnin kær, verri en vargur ær. 51