Það ríki, er erfa ætti hann, vér ekki skildum, sagði hann. Kannske órétti af oss sætti hann, sem enginn bæta kann. Heyr, jörðin gnýr og gnestur! Á grimmum hefndum er oss von. Himininn brestur! Víst hérna dó Guðs réttur son! IX J-EIR SEM HÖFÐU FYLGT OG ÞJÓNAÐ HONUM. Þung og vonlaus þjáir þig hin sama kvöl: Heiminn stöðugt hrjáir Hausastaðar böl. Ríkjum ræður heröld. Rígnegld hönd á þér. Ekki af vorri veröld vald og dýrð þín er. Kvalir ber með kvöldum krossins lýð þín ást. Svo á öllum öldum áfram muntu þjást. Magnús Ásgeirsson íslenzkaði. 55