GBNNAR BENEDIKTSSON SÉRKENNI KRISTINDÓMSINS" í GUÐFRÆÐIDEILD HÁSKÓLANS. Á íslandi er til stofnun, sem heitir Þjóðkirkja. Auk virðulegs biskups hefir þessi stofnun í þjónustu sinni lítið hundrað manna, sem nefndir eru prestar, og til starfrækslu sinnar hefir hún nokkur hundruð húsa, sem kölluð eru kirkjur og eru með laglegri og dýrari húsum hver á sín- um stað. Þessari stofnun er veittur styrkur af íslenzka ríkinu, bæði með því að lögleiða skylduskatt á alla þegna þjóð- félagsins, sem komnir eru yfir 16 ára aldur, og síðan með beinum fjárframlögum úr ríkissjóði, það sem hinn lög- boðni skattur hrekkur ekki til. Mörgum er ráðgáta, hvernig það má ske, að jafn vel menntuð þjóð og íslendingar skuli láta ríkisvaldið eyða stórfé á ári hverju til ekki nytsamari eða menningarlegri starfsemi en trúarbragðastarfsemi er yfirleitt. Ástæður þess eru margar og f jölbreyttar, en þær verða ekki ræddar hér. Stuðningur ríkisvaldsins við þjóðkirkjuna er stað- reynd, sem óhjákvæmilega hlýtur að hafa sínar afleið- ingar. Ein afleiðingin er sú, að ríkið telur sér skylt að halda uppi deild við Háskóla íslands, lil að búa prestana undir starf sitt. Sumum virðist starf prestanna ekki vandasam- 74