hversu guðfræðideildin er gersamlega svipt öllum skiln- ingi á vísindalegri guðfræði og allri tilfinningu fyrir verkefnum Háskóladeildar i þessum efnum. Verkefni það, sem valið hefir verið til samkeppnisritgerðar um kenn- araembætti það, sem nú er laust við guðfræðideildina, hefir varpað skærustu Ijósi yfir það ófremdarástand, sem deildin er komin í. Nú ætla ég að fara nokkrum orðum um þetta verkefni. Verkefnið hljóðar á þessa leið: Sérkenni kristindómsins eins og þau birtast i prédik- un Jesú, lífi hans og dauða og kristninni frá öndverðu til vorra daga. Hvers ber einkum að gæta að dómi reynsl- unnar, svo að þessi sérkenni njóti sín sem bezt í kristin- dómsboðun nútimans?" Við skulum binda okkur við fyrri hluta verkefnisins. TJppistaða þess eru orðin: sérkenni kristindómsins", hitt er nánara tiltekið: eins og þau birtast i ...." og í hverju? Það er ekkert smáræði. Upp á þetta blessaða litla í" eru fest fjögur atriði, og þau eru: 1. Prédikun Jesú. 2. Líf Jesú. 3. Dauði Jesú. 4. Kristnin frá öndverðu til vorra daga. Þetta er fyrri hlutinn af þvi efni, sem umsækjendur eiga að brjóta til mergjar á þrem mánuðum. Athugum nú, hvaða meginreglum þarf að hlýta, ef taka á þetta efni sæmilegum tökum á fræðilegan hátt. Það á að rannsaka og rita um, eitt eða fleiri atriði, sem er sameiginlegt einkenni fyrir allt þetta, sem nefnt hefir verið. Þarna rekur maður strax fótinn i óþægilegan stein. Það er sem sagt byrjað með því að slá föstu, að til sé eitt- hvað sameiginlegt sérkenni, sem fylgt hefir kristninni frá öndverðu og fram á þennan dag og það sama sérkenni sé að finna í kenningu Jesú, lífi og dauða. Enginn heiðarlegur fræðimaður myndi sjá sér fært að fara að rita um sérkenni kristindómsins um allar liðnar aldir, 81