hefir staðið við það, sem hann sagði. Og hvað dauða Jesú áhrærir, þá er vitanlega réttast að afgreiða það mál heldur fljótlega i þessu sambandi, því að spurningin um sérkenni kristindómsins í dauða Jesú er álika skynsam- leg og ef maður færi að tala um sérkenni stjörnufræð- innar í dauða Brúnós eða sérkenni kommúnismans í fangelsun Thálmanns. Þetta atriði er það vitlausasta af allri þeirri vitleysu, sem i verkefninu er falin. En þegar hinn ungi fræðimaður hefir fundið það út og rökstutt það með eigin athugunum og annarra og tel- ur sig reiðubúinn til að verja það frammi fyrir mestu fræðimönnum þjóðarinnar í þeirri grein, hver atriðin eru sérstaklega einkennandi fyrir boðskap Jesú, þá er eftir að spásséra i gegnum alla sögu kristninnar frá fyrstu tið til hinnar síðustu, gegnum eitt tímabil af öðru, frá einni kirkjudeildinni til annarrar, frá einni þjóð til annarrar, frá einni heimsálfu til annarrar, vestan frá Kyrrahafi og alla leið austur að Kyrrahafi, norðan frá Ishafi og alla leið suður að íshafi og ganga úr skugga um það og leiða rök að því, að eitthvert eða einhver þeirra atriða, sem ein- kennandi voru fyrir boðskap Jesú, hafi fylgt kristninni i gegn um allar aldir, í öllum liennar myndum, um allan heim. Nú skulum við segja að þetta takist, en vitanlega myndi það taka fjöldamörg ár, ef i ljós ættu að koma sam- vizkusamir fræðimannshæfileikar. En þá er samt ekki fenginn nema að bálfu leyti grundvöllurinn að aðalefn- inu. Þegar búið er að finna sameiginleg einkenni fyrir allar deildir kristninnar á öllum tímum, sem einnig næðu til boðskapar Jesú Krists, þá er eftir að færa sönn- ur á það, að þessi einkenni séu sérkenni kristindómsins, finnist ekki hjá neinum öðrum trúarbrögðum. Og til þess að ganga úr skugga um að svo sé ekki, þá þarf að arka út í heiminn að nýju. Og nú þarf að rannsaka öll trúarbrögð, sem upp hafa komið um allar aldir út um allan heim. Og setjum nú svo, að öll þau einkenni, sem 83