Háskóladeild. En ég verð þó að gera kröfu til þess, að menntavöld þjóðarinnar hlutist nú til um, að einhver takmörk verði sett fyrir því, hve djúpt hún getur sokk- ið niður i rétttrúnaðarmyrkur miðaldanna. Kennslumála- ráðuneytið verður að skilja það, að það hefir alls ekki leyfi til þess að hafa að nokkru álit þessara prófessora um kennaraval að þessari deild. Það verður að skilja það, að hér er mikið í húfi og leggja verður kapp á að koma í veg fyrir það, að guðfræðideild Háskólans verði áfram skipuð þannig kennaravali, að hún sendi frá sér þröng- sýna sértrúarseggi til að setjast að út um landsbyggðina og gróðursetja að nýju trúarlegar bábiljur út á meðal alþýðunnar og verða þannig sivaxandi hemill á allri menningu lýðsins. 85