af öllum morðtólum og 99% af öllum áróðursgögnum eru i höndum þessarar alráðu stéttar. Hin nýja stjórnarskrá Sovétrikjanna veitir þegnum landsins ekki að eins þessi lýðræðisréttindi amerísku :stjórnarskrárinnar sem mun vera einhver hin lýðræð- issinnaðasta af stjórnarskrám borgaralegra rikja held- ur ákaflega miklu meira. Að hin nýja stjórnarskrá Sovét- lúkjanna löghelgi kosningarrétt miðaðan við 18 ára ald- urslágmark, beinar, leynilegar, jafnar og almennar frum- kosningar, þjóðaratkvæði, afsetningaratkvæði, skoðana- frelsi, trúfrelsi, málfrelsi, ritfrelsi, fundafrelsi, frelsi til félagsmyndunar, frelsi til kröfugangna á götum úti og svo framvegis, eru i sjálfu sér engin stórtíðindi, þar sem þetta eru réttindi, sem stjórnarskrár hinna borgaralegu lýðræðislanda hafa einnig lýst yfir að meira eða minna leyti, þó að mörgum Islendingum muni þykja þetta næsta óvæntar fregnir frá Sovétríkjunum, þessu margrægða landi. Þó er ef til vill ástæða til að taka það fram sérstak- lega, að þessi réttindi eru veitt öllum þegnum Sovétrikj- anna, konum jafnt sem körlum, án tillits til kynstofns manna eða þjóðernis, trúarjátningar eða félagslegs upp- runa, efnahags eða fyrri starfsemi. Sérstök iáherzla er lögð á jafnrétti allra kynflokka og refsing lögð við öllum til- raunum til að koma á kynflokkamisrétti, i hverri mynd sem er. (I Bandaríkjunum, þessu landi lýðræðisins, hefir það, eins og allir vita, getað viðgengizt fram til þessa dags, að svertingjar væru ofsóttir, píndir og jafnvel drepnir á götum úti, án þess að refsing kæmi fyrir). Nýstárlegra er hitt, að hin nýja stjórnarskrá Sovétrikj- anna lýsir, i fyrsta sinni i þjóðfélagssögunni, yfir rétti allra til vinnu, hressingar og menntunar, rétti allra til full- kominna sjúkra-, elli- og örorkubóta. Með lögleiðingu hinnar nýju rússnesku stjórnarskrár er því atvinnuleysi stjórnarskrárbrot, það er stjórnarskrárbrot, ef námfúsum unglingi veitast ekki tök á að njóta menntunar, það er stjórnarskrárbrot, ef manni, sem getur ekki unnið fyrir 107