verður afnumið og hugsanafrelsið fótum troðið. Hundrað- ára frelsisbarátta alþýðunnar verður að engu gerð um ófyrirsjáanlegan tíma. Verðmætum þjóðanna verður tor- tímt í banvænni gasstyrjöld og bakteríustríði. Allt er í veði, ef ekki tekst að stemma stigu við þessari alheims- ógæfu. Hvernig fasismanum verði afstýrt það er hin mikla spurning, sem sker úr um örlög mannkynsins á næstu áratugum. Ráðið er til og aðeins eitt: samfylking hinnar klofnu verklýðshreyfingar, þjóðfylking verkalýðs, bænda og millistétta i sérhverju landi, alþjóðafylking allra frjáls- lyndra manna um gervallan heim. Hver treystist til að taka á sig þá sögulegu ábyrgð að koma í veg fyrir, að þetta ráð verði tekið? 121