KRISTÍN GEIRSDÓTTIR UPPBOÐSDAGUR. Kristín Geírsdóttir er ung skáldkona úr alþýðustétt. Það hefir áður birzt eftir hana ein smásaga i tírn&ritinu Rétti". Kristín er fædd á Hringveri VvWn á Tjörnesi(19. ágústjl908. Sjö ára gömul missti hún föður sinn, en móðir hennar hefir búið á Hringveri síðan, og Kristín alltaf átt heima hjá henni. Fyrir utan almenna barnafræðslu er eins árs al- þýðuskólanám eina menntun- in, sem Kristin Geirsdóttir hefir átt kost á að njóta. Á hinu fátæka heimili móður hennar hefir tími verið naum- ur til lestrar og bókakostur af skornum skammti. Öll þroskaskilyrði hinnar ungu skáldkonu hafa þvi verið mjög erfið. Hún hefir deilt kjörum við þá alþýðuæsku, sem harð- ast verður úti i þjóðfélaginu, eða eins og hún sjálf segir: ég þekki svo vel af eigin raun hina hörðu baráttu og þungu hlekki sjálfsmennskuþrælsins". Kristíu Geirsdóttir. 127