eins og stolinn hlut. Kannske þeir séu illa að þeim komnir, kannskeþeirhafi seilzt lengra i valdastreitu sinni,enþjóð- inni er holt. Hvað segja hinir hlutlausu menntamenn? Sjálfstæði landsins er i hættu, þvi þorir enginn að neita. Árangurinn af aldalangri baráttu þjóðarinnar fyrir frelsi sinu, tilverurétti sínum, er i hættu, árangurinn af öllum fórnum hennar í þessari baráttu, öllum fórnum hinna óeigingjörnu menntamanna, er stóðu fremstir i þessari baráttu. Menntamennirnir halda hátíð ár hvert til að minnast þessarar baráttu, þessara fórna. Ætla þeir að láta við það sitja, ætla þeir að láta það hlutlaust, hvort Island verður framvegis sjálfstætt land eða brezk eða þýzk nýlenda? Hvað hefðu fyrirrennarar þeirra gert, hvað hefðu þeir gert, hinir umkomulitlu Hafnarstú- dentar? 143