W. H. AUDEN FERÐ TIL ÍSLANDS. W. H. Anden. Og sæfarinn óskar: Æ, sé nú hver læknir mér fjarri! og sjávarnöfn skáldanna fylgjast með honum um borð: Borgleysa, Ótryggur, Svörfuður, Sorgin. Og Synjun er Norðursins orð. Og ómælissléttur hins blóðkalda veiðifisks blika, og brim er i lofti af vængjum svífandi flokks. Og undir þeim þjótandi, iðandi fána sér eyjavinurinn loks hilla undir von sína: og fannblikið nær honum færist, fjöllin, nakin og seiðsterk, um vornætur dag. Og undir þeim sandflæmi í ósum fljóta, sem árskrímsl með blævængslag. 157