þess að láta afturhaldsöflin ýta sér út af leikvelli starfs og þroska. j Skilyrðin eru fyrir hendi til samstarfs alþýðuæskunn- ar i landinu. Hún er að meira eða minna leyti skipu- lögð í ýmsum vinstri félögum: verklýðsfélögum, póli- tískum félögum vinstri æskunnar, sumum íþróttafélög- um að ógleymdum ungmennafélögunum, sem nú, eins og endranær, hafa skipað sér i lið með menningunni og lýðræðinu. Öll þessi félög eru hinn sjálfsagði starfsvangur þinn, alþýðuæska. Þegar þú hefir gert þér þeirra hluta grein, sem drepið hefir verið á hér, getur þú ekki beðið að- gerðarlaus. Æska á aldrei að bíða, hún á að vinna strax. Ræðið þið hag ykkar og framtíðarhorfur, hvar sem þið getið þvi viðkomið, fá eða fleiri, félagsbundin eða ekki. Tengið áhugamál ykkar við áhugamál annarra og við önnur félög. Hvort mun ykkur þá ekki finnast þið geta komið skriði á ykkar þroska og hagsmunakröfur, eins og islenzk æska á undan ykkur gat unnið félagsleg afrek. Hver stenzt kjarna íslenzks æskulýðs, þegar hann geisast fram með einu samþykki", og leggst á sveif með þroskanum og framþróuninni. Nú bíður þín það mikilsverða hlutverk í sjálfs þín þágu og þá um leið þjóðar þinnar að krefja sjálfa þig atorku og dirfsku og sannleiksástar, en þjóðfélag þitt skilyrða til þess að lifa, vinna og menntast - og jafn- framt heimta af öllum vinstri öflum í landinu, að þau taki höndum saman gegn þvi auðvaldi, sem æ meir tem- ur sér menningar"aðferðir fasismans. Þinn örvandi, bjarti og gunnreifi máttur megnar að skapa þá samfylkingu vinstri manna og vinstri flokka i landinu, sem ein leysir þín vandamál og gerir líf þinna foreldra auðugra og betra og fyllra en það nú er og tryggir á sínum tima líf og framtíð næstu æsku. Það er einmitt þú, sem verður að gera þetta núna, en ekki geyma það þeim, sem á eftir koma þá getur það 169