um til Italiu, Þýzkalands og annara landa, þar sem hann hefir komið fótum undir blóðstjórn sína. Fasisminn niðurlægir vísindi. 1 löndum hans ent frjáls- lyndir menn útilokaðir frá allri menntun. Konum meinar hann frjálst starfsval, með þær er farið sem húsdýr, er séu til þess eins færar að fæða heiminum nýja atvinnu- leysingja. , Hann styður stjórnarfyrirkomulag, sem með ofbeldi heldur við gengi arðræningjanna. , 1 löndum hans hækka framlög til hernaðar, en lækka til rannsókna og fræðslu. Fasisminn er verkfæri stórveldastefnunnar, en lifsskil- yrði hennar er stríð. Þess vegna gefst ekki nema ein leið til varðveizlu þeirra menningarverðmæta, sem mannkyn- ið hefir eignazt. Sú leið er kollvörpun auðvaldsskipulags- ins. Þetta hafa hinir róttæku stúdentar gert sér ljóst. Þeir hafa skilið hvaðan hættan kom og hvernig henni yrði afstýrt. Þeir hafa skilið, að til þess að slíkt tækist, yrðu allir liðsmenn frelsis og jafnréttis að sameinast og standa saman sem einn maður gegn hópi stríðsbruggaranna, sem hafa að vísu lítinn hluta þjóðanna að baki sér, en yfir 90% alls auðmagnsins og allra áróðurstækja í höndum sínum. I Á Frakklandi og Spáni hafa stúdentarnir, bæði jafnað- armenn og kommúnistar, sameinazt í eitt allsherjar félag róttækra stúdenta. Sömuleiðis i Englandi og Banda- ríkjunum, en þar hafa þeir t. d. ferfaldað félagatölu sína, síðan sameiningin varð, og eru nú i American Students Union yfir 20 þús. meðlimir. Þessi hreyfing meðal stúdentanna hefir þó óvíða orðið eins glæsileg og í Kína og Egyptalandi. í Kína hafa stúdenlarnir tekið forystuna í baráttu fólks- ins fyrir frelsi sinu og gegn yfirtroðslum Japana. Þeir bafa, með staf og mal gengið út meðal fólksins, til 188