samþykkt að stofna eitt alþjóða stúdentasamband jafn- aðarmanna og kommúnista. Var stjórninni falið að und- irbúa sameininguna og kveðja síðan saman stofnfund hins nýja sambands innan árs i síðasta lagi. Lagði þing- ið sérstaka áherzlu á nauðsyn þess, að allir róttækir stú- dentar sameinist i fjöldahreyfingunni gegn bölvun fas- ismans. ( I ályktun þess segir meðal annars um striðshættuna: . .. . Verndun friðarins er lífsnauðsyn alþýðunnar i hinni daglegu baráttu hennar fyrir bættum kjörum, i barátt- unni fyrir frelsun mannkynsins undan oki auðvaldsins. Hún er þó sérstaklega nauðsyn æskunnar og stúdentanna. i Stríð er ekki óhjákvæmilegt og við verðum að gera allt, sem í okkar valdi stendur, til að varna því. Við erum þeirrar skoðunar, að það sé afleiðing auðvaldsstjórnar- innar og baráttan gegn stríði sé því baráttan gegn auð- valdsþjóðskipulaginu ...." Hvernig sem málin annars kunna að ráðast, er það víst, að róttækir stúdentar munu berjast sem einn maður gegn því, að morðhæll fasismans fái að traðka þeim rétti og þeirri menningu, sem fólkinu tilheyrir. 190