JÓHANNES ÚR KÖTLUM SAGAN AF SIGNOR MDSSOLINI. Þið þekkið kannske söguna af signor Mussolini, sem situr nú við hliðina á páfanum í Rómi. Hann hafði' orðið svo mikið af menningu á lager", að mörgum þar á ftalíu blöskraði í tómi. Því eins er það um menninguna og önnur heimsins gæði, að offramleiðsla er varasöm og getur lent í þófi, réttlætið getur myglað og frelsið getur fúnað og friðurinn getur ryðgað, ef allt er ekki í hófi. Og Mussolini leitaði að lausn á þessum vanda og loksins fann hann þjóðráðið einn morgun klukkan tíu, og ráðið var að gefa þeim, sem ekkert þvílíkt áttu, það, sem afgangs var af rómversku menningunni nýju! En hverjum átti að gefa slíka gjöf, svo fagra og dýra? Jú, guðsélof! og mannvinurinn blístraði af kæti. í Afríku var þjóð ein, sem um þrælahald var sökuð, ¦ þar þurfti einmitt menningin að sýna hvað hún gæti! Því þó að þessir villtu karlar væru nokkuð svartir, við vísindin frá Rómaborg þeir hlutu strax að lagast. Að horfa upp á þrælahald var heiminum til skammar, svo heimsins vegna mátti þetta kærleiksverk ei dragast. 191