NORDAHL GRIEG DELESCLUZE A GÖTUVÍGINU. Þátturinn, sem hér fer á eftir, er úr nýju, óprentuðu leikriti, Nederlaget (Ósigur- inn), sem Nordahl Grieg, hið fræga leikrita- og ljóðskáld Norðmanna, er að skrifa um Parisarkommúnuna 1871. Tvö siðustu leikrit höf undarinS, Vár ære og vár makt og Men imorgen, vöktu geysilega at- hygli á Norðurlöndum. Nú hefir Nordahl Grieg sýnt Rauðum pennum" þann vin- arhug, að senda þeim til birt- ingar kafla úr hinu nýja leik- riti sínu. Þetta er 3. þáttur leiksins og gerist á götuvígj- unum í Paris, rétt áður en Versalasveitirnar gera árás á borgina og blóðbaðið hefst. Byrjunin á þættinum lýsir verkalýðnum, meðan hann bíð- ur árásarinnar. Hann heilsar með fögnuði hernaðarfulltrúa kom- múnunnar, borgara Delescluze, sem ekur frá vigstöð til vígstöðv- ar til þess að hvetja verkamennina. Delescluze er 60 ára gamall, blaðamaður; mestan hluta æfinnar hefir hann setið i fangelsi eða verið útlagi. Þar eð gera má ráð fyrir, að margir lesendur Rauðra penna" séu ófróðir um sögu Parísarkommúnunnar, þá fylgir hér Nordahl Griey. 193