dálítill sögulegur inngangur leikritinu, og hefir Ásgeir M. Blön- dal skrif.'ið hann. Parísar-kommúnan rís upp úr atburðarás sögunnar sem hin fyrsta valdataka verkalýðsins, þó að verkalýð Parísar tækist aS visu ekki að halda þessum völdum nema 70 daga. 1870 hófst þýzk-franska striðið, sem lauk með haðulegum hrak- förum franska keisaraveldisins. Keisaraveldið hrundi, lýðveldið var reist. En svikin við þjóðina héldu áfram og kúgun alþýðunnar. París var umsetin af þýzka hernum, og i borginni geisaði hungr- ið, dýrtíðin, atvinnuleysið. Lýðveldis"-stjórnin gerði ekkert til að létta þessum hörmungum, þvert á móti studdi hún braskarana og peningamennina til að græða sem mest a neyð fólksins. Hér við bættist, að hún hélt áfram að makka við Þjóðverja, sveik vörn borgarinnar og samdi svo að lokum um svivirðilegan og niðurlægjandi frið. Nú var fólkinu nóg boðið. 18. marz 1871 reis alþýða Parísar upp, rak stjórnina af höndum sér, og kaus sína eigin stjórn, kommúnu"stjórnina í París. En gámla lýðveldis"stjórnin, auð- menh Parísar og þeirra þjónar, flýðu til Versaille, til að undir- búa þaðan árásina á Paris. Þó að kommúnan" héldi völdum aðeins 70 daga, vann hún samt risavaxið starf til hags og styrktar alþýðunni. Fyrirtæki hinna brottflúnu auðmanna voru tekin eignarnámi og rekin með sósíalistisku sniði, komið var á opinberri vinnumiðlunarstofnun og gerðar stórkostlegar tilraunir til að eyða atvinnuleysinu. Vinnu- dagurinn var styttur og hin þreytandi yfir- og næturvinna bönn- uð. Jafnframt þessu voru gerðar ítarlegar ráðstafanir gegn dýr- tíðinni og girt fyrir allt brask með lífsnauðsynjar fólksins. Til menntunar alþýðunni voru þegar stigin stór skref. Barnagarðar og leikvellir voru reislir í fátækrahverfunum, skóli og kirkja að- skilin og lögð drög að því að koma á kerfi alþýðuskóla, þar sem verknám og fræðsla héldust í hendur. i En þessari fyrstu verkalýðsstjórn vannst ekki tími til að full- komna þetta verk sitt. Fjandmaðurinn beið við borgarhliðið. Veik- leikar kommúnunnar" birtust fyrst og fremst i afstöðunni til fjandmannanna. í stað :þess að fylgja strax eftir valdatökunni og ráðast að óvinunum, þar sem þeir sátu í Versaille, lét hún þá í friði við að undirbúa þaðan árás á París. Sömuleiðis lét hún undir höfuð leggjast, að þjóðnýta Frakklandsbanka, sem styrkti óvinina með stórum fjárfúlgum. Henni tókst heldur ekki að vinna alþýðu sveitanna sem bandamann sinn. Og að lokum: Hún átti éngan einhuga, sterkan pólitískan flokk, sem væri raunverulega fær um að hafa forystuha á hendi. 194