opinskátt, beint framan í friðarþjóðirnar, á nýlendur sinar", tala hildaust um landvinninga í Sovétrikjunum, um málmauð Úralf jalla og kornekrur Úkraínu sem nægt- ir til að bæta með úr skorti þýzku þjóðarinnar (og gefur Hitlerstjórnin þar með opinbera viðurkenningu um úr- ræðaleysi fasismans að sjá þjóðinni fyrir lifsmöguleikum). Þegar svo nálægt stríðinu er komið, þá er að æsa þjóðina sem allra mest, hvetja hana með dæmi Mussolinis. Báðir, Hitler og Mussolini, hafa ætlazt hið sama fyrir, þó á glóðum séu um valdadrauma hvors annars. I bili sameinast þeir um næsta ránsfeng. Stríðsáætlun fasism- ans er í rauninni þegar i framkvæmd. Spánn varð næsli áfangjnn eftir Abessiníu. Þar er heimsstyrjöld fasismans hafin. Framar getur enginn um þá staðreynd deilt, að fasisminn er að hleypa heiminum i nýtt ófriðarbál, sem hann hefir undirbúið árum saman í landránaskyni, til hagsmuna nokkrum auðkýfingum. , Hernaðarstefna fasismans þarf ekki frekari útlistunar. Það er óvefengjanlega staðfest með atburðum síðustu mánaða, að strið er efst á dagskrá fasismans, enda beint framhald, einskonar hærra stig af arðráni hans heima fyrir. Fasisminn er ekki annað en ofbeldisráðstöfun til þess að tryggja fáum auð, en skapa fjöldanum hungur. Þessi staðreynd er alltaf að koma skýrar fram og verða almenningi um allan heim betur og betur ljós. En við neyðina er ekki auðvelt að sætta heilar þjóðir til lengdar án loforða eða vonarneista um það, að henni muni ein- hverntíma linna. Með landvinningaáróðri sínum reynir fasisminn ekki sízt að vekja hjá fólkinu drauma um við- unanlegri lífskjör. I Abessiníu er nægur auður handa It- ölum, sagði Mussolíni, til huggunar smælingjunum, er gjarnan þáðu meiri allsnægtir en 13 ára stjórn fasismans hafði boðið þeim upp á. Til Úralf jalla og Úkraínu geta Þjóðverjar sótt allsnægtir, segir Hitler, þeim til uppörv- unar, er kann að finnast sporin þyngjast til Paradísarsælu Þriðja ríkisins. En sannleikurinn um Abessiníustríðið er 207