inn, sem er þess albúinn tólf ára gamall að deyja fyrir hugsjón sína, eins og reyndur hermaður á vígstöðvunum" (Der Angriff, 2.4. 1933). Þannig elur fasisminn sér upp nýja kynslóð me'ð hernaðartakmarkið eitt fyrir augum. Hauskúpa er fánamerki 10 ára Hitler-barnanna" þýzku. Við erum fædd lil þess að deyja fyrir Þýzkaland" var hin stórletraða yfirskrift æskuþingstaðarins i Marnan, þar sem þúsundir Hitleræsku komu saman 1935. Fædd til þess að deyja! Þetta er uppeldishugsjón fasismans, túlkuð í skólum, fræðslustofnunum og öllum leyfilegum félagsskap æskulýðsins. Þetta er menningarstarf fasism- ans meðal æskulýðsins! Fyrir Þýzkaland! Það útleggst: nokkra auðkýfinga, sem leiða hrun yfir Þýzkaland. Þá er útgáfustarfsemin. Ég tek hér eitt dæmi. Fyrir jól- in í fyrra gaf samband bókaútgefenda i Þýzkalandi út auglýsingabindi, með útdráttum úr efni þeirra bóka, sem mælt var með til jólakaupa handa þýzkum lesendum. Þar voru taldar yfir 2000 bækur frá rúmum 230 útgáfufélög- um. Og þegar lesinn er efnisútdráttur þessara bóka, þá kemur í ljós, að þeim má öllum, nærri án undantekningar, skipta i þrjá flokka: bein hernaðarrit, kynþátta- og ný- lendu-bækur. En er þessir þrír flokkar eru betur athugað- ir, þá er stríðsáróður sameiginlegt inntak þeirra allra. Kynþáttafræðin miðar öll að þvi, að vekja arískt ofslæki, germanskan vigamóð og hatur til annarra þjóða, og ný- lendubækurnar, sögur o. fl., eru samdar með það fyrir augum, að vekja ágirnd Þjóðverja á nýlendum, undirbúa samskonar ránsferð og Mussolíni. Sórstakt hlutverk, inn- an allra þessara flokka, hafa æsingarnar gegn Sovétríkj- unum, ýmist sem aðalefni eða krydd í vísindin og skáld- skapinn. Skáldsögurnar heyra allar undir einhvern þess- arra þriggja flokka, engu siður en vísinda"-ritin. Við útvarpsstarfsemina skal ekki tafið, aðeins bent á, að hún er sterkasta áróðurstækið, og þvi er miskunnar- laust beitt í þjónustu fasismans og komandi stríðs. Ætti 209