uppi málstað smáþjóða og undirokaðra þjóða. Þau styðja allt friðarstarf, taka þátt i öllum friðarþingum, all- ir friðarvinir eiga athvarf hjá þeim. En aldrei hefir starf- semi Sovétrikjanna i þjónustu friðar og réttlætis birzt i jafn glæsilegri mynd og nú gagnvart spönsku þjóðinni, er þau, ein allra lýðræðisrikja, styðja með ráðum og dáð fil verndar friðnum í álfunni. Um inntak og ávöxt þessarar friðarstefnu sannfærast menn fullkomlega með því að kynna sér sjálfa fram- kvæmd sósialismans innan Ráðstjórnarríkjanna. Frið- samlegt nýbyggingarstarf með velmegun, frelsi og jafn- rétti allra að takmarki er stefna þeirra. Áætlanir Sovét- ríkjanna hafa ekki verið hernaðaráætlanir. Samtimis og Mussolini gerði áætlun um nýja styrjöld, gerði Sovét- sljórnin áætlun um friðsamlegt uppbyggingarstarf, svo stórfenglegt, að jafnvel gamlir spámenn eins og H. G. Wells hrópuðu upp um draumóra og skrumauglýsingu. Þessi áætlun lagði grundvöll að efnalegu sjálfstæði Sovét- rikjanna, veitti hin nauðsynlegu skilyrði til velmegun- ar, fullkominna lýðréttinda og einstaklingsfrelsis. Önnur áætlunin hefir tryggt sigur sósialismans og útfyllt skil- yrði hinnar fyrri. Með framkvæmd hennar njóta Sovét- þjóðirnar fyrst verulegs ávaxtar af skipulagi sósíalism- ans, aukinnar velsældar og menningar. Hér eftir getum við gert manninn, i öllum hans mikilleik, að miðdepli allra okkar áætlana. Maðurinn er ekki, eins og fasism- inn staðhæfir, skarn á hóla veraldarsögunnar, hann er ekki viðskeyti auðvaldsvélarinnar, sem á að skapa fá- mennum hópi mannfélagsómaga þægilega tilveru í hóg- lífi og munaði. Maðurinn er sinnar eigin gæfu og sögu smiður. Hið stórfenglega takmark sósíalismans er ein- mitt maðurinn sjálfur" (Stalin, mai 1935). Með fram- kvæmd sósíalismans öðlast maðurinn ný og óþekkt skil- yrði til vaxtar og þroska. En með þroska og vexti sjálfs hans blómgast allt starf hans, verklegt og menningarlegt. Um leið og maðurinn er orðinn velmegandi og frjáls í 214