heimsalþýðunnar og bandamanna hennar gegn fasisma og stríði hefir aldrei fyrr náð jafn háu stigi. Á alþýðusamtök Englands, er fram að þessu hafa sýnt litla árvekni, er jafnvel kominn þungur skriður. Sam- úðaraldan með frelsisbaráttu spönsku þjóðarinnar er geysilega voldug meðal alþýðu allra landa. Á hinn bóg- inn styðja málgögn auðmannanna (sbr. Morgunblaðið) fasistana af blygðunarlausum ofsa. Þar getur hver þjóð þekkt sína svörnustu fjandmenn, í samúð þeirra með þjóðernissvikurum og landránamönnum, enda rís æ voldugri reiðibylgja móti þeim í hverju landi, og á al- þjóðlegan mælikvarða. ÖU alþýða manna í heiminum hatar auðvaldið, fasismann og stríðið. Það er ekki til i heiminum nein þjóð, sem óskar eftir styrjöld," eru orð Stalins. Sína máttugustu staðfestingu hafa þau eign- azt á friðarþinginu í Brússel í haust, þar sem saman voru komnir fulltrúar meira en hundrað milljóna manna til kröftugra andmæla nýrri heimsstyrjöld. Ann- að leiftrandi dæmi þess, hvað friðarhreyfingin er orð- in sterk í heiminum, er úthlutunin á friðarverðlaunum Nobels til Karls von Ossietsky, hins heimsfræga rithöf- undar og friðarvinar, sem verið hefir fangi fasistanna á Þýzkalandi á 4. ár. Samfylking allrar alþýðu, bænda og millistétta, ráð- ið, sem Dimitroff gaf til varnar og sóknar móti fas- ismanum i nafni miðstjórnar kommúnistaflokksins á heimsþinginu í Moskva 1935, er orðið hið sterka leiftr- andi kjörorð, er safnar um sig milljón af milljón hins striðandi lýðs. Samfylkingin ein, með Sovétríkin að bak- hjarli, er það máttarvald, sem hið vinnandi mannkyn byggir á þær vonir sínar, að takast megi að vinna bug á fasismanum og koma í veg fyrir nýja heimsstyrjöld. Samfylkingin er hin sterka rödd fólksins, er heimtar rétt sinn til að lifa frjálsu lifi á jörðinni, en hún er jafnframt framkvæmdavald þess. 225