kynni við nýmenningu Sovétríkjanna og hrifizt af henni. Þeir eru loks að opna augun fyrir f asismahættunni, hafa séð, hvernig amerísku höfundarnir fara fram úr þeim, taka bókamarkað frá þeim o. s. frv. Þetta allt hefir haft þau áhrif, að róttækni og alvara vex í bókmennta- starfsemi Englendinga. Á síðasta ári hófst útgáfa bók- menntaritsins New Writing" með sameinuðum kröftum þessara nýju rithöfunda Englands. Nýja bókmennta- félagið Left Club", sem mánaðarlega gefur út valið rit, hefir á örfáum mánuðum eignazt tugi þúsunda meðlima. Hin róttæka hreyf ing á sín megin hin ef nilegustu af yngri skáldum Englands, Day Lewis, Ralph Fox, Stephen Spender og W. H. Auden. Hinir þýzku rithöfundar og skáld, sem útlagar eru úr föðurlandi sínu, halda uppi öflugri menningarbaráttu, þrátt fyrir það, að þeir eru dreifðir um mörg lönd og búa við þrengstu kosti, án lífrænna tengsla við þjóð sína. Nýlega hafa þeir sameinazt um útgáfu mánaðarrits, sem Thomas Mann, Feuchtwanger og Bert Brecht eru rit- stjórar að. Tímaritið heitir Das Wort" (Orðið) og er gefið út í Moskva. Með stofnun þess hefja þeir baráttu sína gegn fasismanum á nýtt stig, sameina betur kraft- ana og geta einbeitt þeim skarpar. Undir forystu hins snjalla Nordahls Grieg eignast menningarstarfsemi Norðmanna nýtt innihald og ákveðna stefnu. í febrúar í ár var stofnað tímaritið Vejen frem", sem er leiftrandi bardagarit móti fas- isma og stríði, og hafa safnazt um það margir beztu höfundar Norðmanna, m. a. Överland, Sigurd Hoel, prófessor Paaschke, auk þess sem ýmsir frægir höfund- ar annarra þjóða skrifa fyrir tímaritið. I Svíþjóð hefir einnig samskonar barátta verið vakin og nýtt timarit stofnað, Kulturkamp", sem rithöfundarnir Erik Blom- berg, Ture Nerman og Arnold Ljungdal standa að m. a. Þessi vöxtur í hverju einstöku landi, sem ekk- ert rúm er til að segja hér nánar frá, kemur siðan 232