til verndar henni, fari að lieyja skipulega menningar- baráttu, fari að opna augun fyrir hættunni frá fasism- anum. Það stendur ekki á hinum róttæku menntamönn- um til samvinnu i þessu efni. Þeir æskja einmitt slíkr- ar samvinnu. Og Rauðir pennar" telja það eitt aðal- hlutverk sitt að stuðla að þvi, að þessi samvinna tak- ist. Hárbeitt aðvörun til íslenzkra menntamanna, ef þeir gengju ekki alls blindir, heí'ði sá atburður mátt verða, er höfuðmálgagn Sjálfstæðisflokksins", er þykist vera málsvari(M) lýðræðis og menningar, gengur svo langt i þjónustu sinni við fasismann, gerir íslenzku þjóðinni þá menningarsmán, að stimpla þann rithöfund land- ráðamann, sem virðingarmesta menningarstofnun borg- arastéttarinnar í heiminum hefir talið þess maklegan að hljóta friðarverðlaun. Fasismadaðrið gengur hér f jöll- unum hærra. Hvenær ætla íslenzkir menntamenn að rumska? Hvenær finnst þeim hættan nógu alvarleg? W. H. Auden er ungur, enskur rithöfundur, er unnið hefir sér frægð, bæði sem leikrita- og ljóðskáld. Hann er hiklaust talinn einn efnilegasti höfundur Englands, þeirra, sem nú eru að vaxa upp. í sumar dvaldi Auden hér á landi, ferðaðist viða um, en vann jafnframt að bók um ísland, og er von á útkomu hennar í Eng- landi mjög bráðlega. Auden hefir sýnt Rauðum pennum" þá góðvild, að yrkja handa þeim kvæðið, sem birt er hér að framan í íslenzkri þýðingu. Guðmundur Böðvarsson hefir vakið á sér athygli með kvæð- um, sem birzt hafa eftir hann á víð og dreif í tímaritum. Nú fyrir jólin er von á fyrstu Ijóðabók hans, Kyssti mig sól". Guðmundur er bóndi á Kirkjubóli i Hvítársíðu. 240