Iðnneminn


Iðnneminn - 01.09.1995, Blaðsíða 11

Iðnneminn - 01.09.1995, Blaðsíða 11
rátt fyrir allt umtal hin síðari ár um réttindamál iðnnema í matvæla- og þjónustugreinum virðist enn eima af því viðhorfi á meðal meistara og atvinnurekenda að iðnnemar séu ódýrt vinnuafl sem fara má með eins og þræla í á- nauð. Rétt er að taka það fram að þetta á þó alls ekki við um alla meistara eða atvinnurekendur og sumir ættu jafnvel viðurkenningu skilið (þ.e.a.s. ef það tíðkaðist að veita viðurkenningu fyrir að fara eftir settum lögum og reglum!). I þeim tilvikum sem meistarar komast upp með þetta er nær und- antekningalaust um hrein og klár lögbrot að ræða, t.d. að hreinlega er ekki gerður námssamningur eða hann ekki gerður innan þess tíma sem lög gera ráð fyrir. Astæður þessa eru ýmist þær að viðkom- andi atvinnurekandi hefur ekki leyfi til að hafa nema eða er með allt of marga nema á hverjum tíma. Til þess að koma þessum málum í lag hefur Iðnnemasambandið ásett sér að heimsækja sem flest fyrir- tæki á næstunni sem hugsanlega gætu verið með nema með lögleg- um eða ólöglegum hætti í mat- reiðslu, framreiðslu, hársnyrtingu, bakaraiðn og hugsanlega fleiri iðn- greinum. Slíkar heimsóknir hafa gefið góða raun og skemmst er að minnast þess þegar fulltrúar INSI heimsóttu flestar hársnyrtistofur á Stór-Reykjavíkursvæðinu, Selfossi og á Akureyri um síðustu áramót en eftir það bárust ótal launa- og réttindamál inn til Iðnnemasam- bandsins til úrlausnar. Mikilvægt er að þeir einstaklingar sem hefja störf hjá fyrirtæki eða meistara kanni vel eftirtalin atriði: Hvort búið sé að gera námssamn- ing og hvort vinnustaðurinn sé með nemaleyfi og tilskilinn fjölda útlærðra starfsmanna. Ekki er hægt að læra framreiðslu, matreiðslu, hársnyrtingu eða bak- araiðn án þess að gera námssamn- ing og það innan mánaðar frá því að viðkomandi hefur störf, að öðr- um kosti er verið að brjóta lög. Það er mikill misskilningur að hægt sé að hafa iðnnema án námssamnings til reynslu, reynslutíminn er inn í samningstímanum og getur hvor aðili fyrir sig sagt námssamningi upp án ástæðna með viku fyrirvara fyrstu sex mánuðina í fjögurra ára námi. Ef ekki er gerður námssamn- ingur innan mánaðar má ekki greiða laun samkvæmt iðnnema- taxta. Námssamningur er ekki löglegur nema hann fái staðfestingu iðnfull- trúa. Ef svo er ekki er nauðsynlegt að leita strax til Iðnnemasambands- ins og fá þar aðstoð við að inn- heimta rétt laun og hugsanlega fara í skaðabótamál við viðkomandi at- vinnurekanda eða meistara. Hvort launaseðill sé löglegur og vinnutími og laun séu samkvæmt kjarasamningum. Hvort skilað sé tilskildum gjöldum, s.s. stað- greiðslu skatta, lífeyrissjóðsgjöld- um, sjúkra- og orlofssjóðsgjöldum og félagsgjaldi. A launaseðlum á að koma fram fjöldi vinnustunda í dagvinnu og yfirvinnu og viðkomandi taxtar, allt sundurliðað. Einnig eiga að koma fram öll gjöld sem dregin eru af viðkomandi s.s. skattur, lífeyris- sjóður og félagsgjald. Orlof á að koma fram og skal það vera sund- urliðað og uppsafnaðir tímar eða fjárhæðir frá því að orlofsárið byrj- aði tekið fram. Þar sem unnar eru vaktir á auk þess að taka fram hversu margir tímar séu unnir í vaktaálagi. Vaktir skulu unnar eftir sérstöku plani sem samþykkt á að hafa verið af meirihluta þeirra starfsmanna sem eftir því vinna. Ef unnar eru allar vaktir eiga að greiðast full dag- vinnulaun auk vaktaálags og yfir- vinnu eftir því hvernig vaktirnar eru. Ef vinnustundafjöldi fer yfir 173 tíma greiðist yfirvinna fyrir alla vinnu umfram það, öll vinna utan vaktaplans greiðist í yfirvinnu. Mikilvægt er að allir iðnnemar fylgist sjálfir með því hvort skatti, lífeyrissjóðsgjöldum, sjúkra- og or- lofssjóðsgjöldum og félagsgjaldi sé skilað til viðkomandi aðila, upplýs- ingar um þá er hægt að fá á skrif- stofu INSÍ. Allir iðnnemar sem gert hafa náms- samning eiga að fá sendan heim til sín kjarasamning um iðnnemakjör og reglugerð um námssamninga en auk þess ættu allir iðnnemar að verða sér úti um kjarasamning við- komandi sveina þar sem iðnnemar eiga að hafa öll þau sömu réttindi sem ekki eru áunnin með meiri menntun eða starfsreynslu. Allar frekari upplýsingar og aðstoð er fúslega veitt á skrifstofu INSI. ft n ö u ö ! IÐNNEMINN I I

x

Iðnneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.