Iðnneminn


Iðnneminn - 01.05.1998, Blaðsíða 7

Iðnneminn - 01.05.1998, Blaðsíða 7
I.maí ávarp Iðnnemasambands íslands Ein uppáhaldsiðja menntamálaráðhcrra þetta kjörtimabil er að berja scr á brjóst og fágna árangri í iðn- og starfsmenntamál- urn. Þar er hann að tala um þá skóla sem risiö hafa á höfuðborgarsvæðinu sem sérstaklega eru ætlaðir til starfsmennntunar. Margt gott hefur verið gert í þeim cfnum en í baráttunni fyrir bættri starfsmcnntun í landinu þarf alltaf að staldra við og velta upp nokkrum spurningum, hvert er markmiðið með starfsmcnntun, hver ber ábyrgö á að þekkingin viðhaldist og hafa allir tækifæri til að leggja stund á starfsmenntunargreinar? Þegar þessi grundvallaratriöi eru höfð í huga þá kemur íslenska menntakerfið oft spánskt fyrir sjónir. Starfsmenntun er eitt mikilvægasta menntunai stig þjóðarinnar, það hefur margoft sýnt sig að þær þjóðir sem búa yfir vel starfsmenntuðu fólki hafa betri alþjóðlega samkeppnisstöðu heldur en þær þjóðir sem ekki hafa lagt jafn mikið uppúr slíkri menntun. Margoft hefur verið sannað að það hreinlega borgar sig að taka erlend lán sem fatf' beint inní iðnskólakerfið, því borga sig upp í meiri afköstum og frumkvæði hjá hinum skóluðu starfsmönnum. Markmiðið hlýtur því að vera að vanda til iðn- og starfsmenntunar, búa nemcndum góð skilyrði í námi og auka fjölbreytileikann í starfsmenntun á íslandi. Það er mikið áhyggjuefni að margar af þeim iðngreinum sem hafa verið rótgrónar í gegnum tíðina eru nú að hverfá úr menntakerfinum vegna lítiliar aðsóknar og þekkingin sömuleiðis. Nauðsynlegt er að sporna.við þessari þróun og viðhalda þeirri verkkunnáttu sem lifað hefúr með þjóðinni um langan tíma. Þar hljóta'menntamálayfirvöld að bera ábyrgð því að ef hvatningin er ekki til staðar fyrir ncmann innan skólakerfisins og námið jafnyel illa kynnt, er ekki hægt að ætlast til þess aö fólk hópist á tiltekna námsbraut. En þaö eru flciri sem bera ábyrgð á því að kunnáttan viðhaldist og það eru þeir sem búa yf- ir henni. í dag er það alltof fátítt að meistarar finni hjá sér þörf til að taka fólk á samning, nema sem ódýrt vinnuafl og til eru dæmi þess að nemar mæti í sveinsprófið með fjögurra ára langa-þjálfun í því að sópa gólf en litla ktmnáttu þess fyrir utan. Þarna vantar gjörsamléga að meistararnir finni hjá sér ábyrgð ,ril áð bera áfram þá þekkingu sem þeir hafa öðlasri í því stjórnkerfi sem við lifúm við í dag er þaó lenska að hinn frjálsi markaður hafi allt ákvörðunarvald í atvinnuíifinu. SmáB og smátt eru menntamálayfirvöld að varpa ábyrgðinni yfir á þessa ósýnilegu frjálshyggjuhönd sem tekur henni fagnandi og um leið því valdi sem henni fylgir. Allt í einu er það atvinnulífið sem er farið að byggja upp skóla sem eiga að mennta naéstu kynslóðir. Fyrirkomulagið er dásamað þar sem markaðurinn leggur meira fé til skólans en þjóðin sjálf hefði tínit áð gera. Én hvaða vald færir þetta atvinnulifinu. Nú getur markaðurinn stjórnað því hversu margir útskrifast úr iðninhi og með hvaða menntun og ef eitthvað fer úrskeiðis er það í raun enginn sem er ábyrgur. Menntun er það mikilvægasta sem við þiggjum og þegar við afsölum okkur valdi yfir henni erum við komin á hála braut. í hinum hefbbundnu iðngreinum er nema-meistarakcrfið allsráðandi. Þar hefúr það lcngi verið svo að meistararnir ráða því hverjir komast á samning, hversu margir o'ghvenæt. Þannig hafa þeir alltaf getað ráðið markaðinum og þegár verkefnaskorl ur er allsráðandi er ekki nokkur nemi tekinn á samning, cn þegar uppsveiflan kemur er ekki til nóg af menntuðu fólki í grein- inni. Á meðan þetta kerfi er við lýði þarf heldur e'hgan að undra af hverju konum er lokaður aðgan'gUr að flestum hefðtóndn- um iðngreinum. rj" ^ Það er kominn tirni til að við ákveðum hver ber ábyrgð og hver ræður framtíðinni. Viljum við að jafnrétti ríki til náms á Ís- J landi. Viljum við gefa hæfustu einstaklingunum færi á að mennta sig eöa á það að vera háð duttlungum atvinnulífs og meist- ara hverjir eru útv'aldir. Það er kominn tími til að menntamálayfirvöld í landinu kannist við skyldúr sínar og taki stjórnina í sínar hendur í stað þess að afsala sér ábyrginni. Nauðsynlegt er að stokka upp kerfið þannig að hæfileikar og áhugi ráði því hverjir og hversu margir geta lagt stund á iðnnám. Krafan á baráttudegi verkalýðsins og alla aðra daga ársins hlýtur að vcra góð menntun til handa verkafólki þar sem hæfileikar hvers og eins fá notið sín til heilla fyrir þjóðfélágið og einstaklingana. \<% ÍSBERG I ð n n e m i n n 7

x

Iðnneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.