LYFJAVERZLUN A ISLANDI. Frumvarpi um ríkiseinkasölu á lyfjum hefir nýlega verið vísað frá Alþingi. Ef blöðin skýra rétt frá, er svo að sjá, sem í'lutnings- mennirnir hafi ekki látið á því bera, að þeir hafi séð annan galla á lyfjaverzluninni en þann einan, að iyfja- verðið væri of hátt, og úr þvi hafi þeir viljað láta rikis- einkasöluna bæta. Læknafélagið, sem málið hefir verið borið undir, virðist hafa litið á það mjög á sama hátt, en telur að lyfjaverðið megi lækka, að fyrirkomulaginu óbreyttu, sennilega svo mikið, að almenningur megi vel við una og án þess að nokkur áhætta fylgi. Ef annað hefir ekki legið fyrir Alþingi, eru málsúrslitin eðlileg og skiljanleg. Alþingi veit, að heibrigðisstjórnin hefir lyfjaverðið í sinni hendi. Það felur henni að lækka lyfjataxtann, sem hún mun vera meira en fús til. Og allir eru ánægðir nema lyfsalarnir, sem þó munu hugga sig við, að betri var hálfur skaði en allur. En ég hygg, að málið sé öllu flóknara og allt fyrir- komulag lyfjaverzlunarinnar miklu alhugaverðara en bæði flutningsmennirnir og Alþingi í heild sinni og jafnvel læknafélagið virðist hafa áttað sig á. Tel ég, að úrslitin, sem málið hefir fengið, séu svo vafasöm, að þau séu að minnsta kosti ærið íhugunarefni. Veiður reynt að sýna fram á það í þessari grein. Ég hygg, að um það geti enginn ágreiningur orðið, að því aðeins sé lyfjaverzlun í góðu lagi, svo á íslandi sem annars staðar,