[vaka] VILM. JÓNSS,: LYFJAVERZL. Á ÍSLANDI. 271 1) að almenningi sé tryggður svo greiður aðgangur að nauðsynlegum lyfjum sem verða má, 2) að lyfin séu ósvikin og svo vönduð og áreiðanlega verkandi sem lyfjum er léð að vera, 3) að sem tryggilegast sé girt fyrir, að slys verði að skakkt samsettum eða skakkt útilátnum lyfjum. 4) að lyfin séu hreinlega og smekklega umbúin og aí'greidd, 5) að almenningur fái lyfin með sem lægstu verði, eftir að séð hefir verið fyrir því, sem á undan er talið. Hvernig uppfyllir nú lyfjaverzlunin á íslandi þessi skilyrði?___________ Áður en ég leitast við að svara þeirri spurningu, verð ég að skýra lauslega fyrir lesandanum og bera saman tvennskonar inismunandi fyrirkomulag á íilbúningi lyfja, se.m nú ræður i veröldinni. Annað fyrirkomulagið og hið cldra er það, að ein- stakir lyfsalar, sem uppfylla viss þekkingarskilyrði og sitja svo víða sem þeir sjálfir telja sé lífvænlegt (þar sem lyfjaverzhmin er frjáls t. d. á Englandi) eða heil- brigðisstjórnirnar telja gerlegt og gagnlegt fyrir al- menning (þar sem lyfsöhirétturinn er íakmarkaður, svo sem á íslandi) afla sér vissra fyrirskipaðra lyfja- efna og blanda síðan, búa til og hluta í sundur öll tíðkanlcg lyf, að miklu leyti jafnóðum og þau eru af þeirn heimtuð. Hitt fyrirkomulagið er nýrra, en ryður sér æ meira og meira til rúm, að lyí' eru blönduð, búin til og hlutað sundur til afgreiðslu í scrstökum Iyfjaverksmiðjum. Fleygir þeim verksmiðjuiðnaði áfram með hverju ári, og hafa sumar verksmiðjur og verzlunarhús náð svo mikilli fullkomnun i þessari grein og aflað sér þeirrar viðurkenningar, að hvarvetna um siðaðan heim er nafn þeirra af læknum og lyfjafræðingum talin fullgild trygg-