272 VILM. JÓN'SSON: [vaka] ing fyrir því, að lyfin, sem þau bjóða, séu svo full- koniin, vönduð og áreiöanleg í alla staði, sem fremst verður á kosið, svo sem þekkingu manna í þessum efn- um er nú varið. Hygg ég, að ekki sé ofmælt, að svo sé um þau tvö lyf jafirmu, sem ég hefi lítillega kynnt mcr og fengið upplýsingar hjá, til þess að glöggva mig á þessu máli, en það eru þau Parke, Davis & Co. og Burroughs Wellcome & Co. Er aðalheimili hins fyr- nefnda í Bandaríkjunuin, en hins síðarnefnda í Eng- Iandi. Parke, Davis & Co. hafa þó einnig mikla lyfja- verksmiðju í Englandi og bæði firmun hafa Útibú i öll- iiui heimsálfum auk fjölda vöruhúsa qg umboðsmanna i flestum löndum. Þegar einstakir lyfsalar eru bornir saznan við full- koinnar lyfjaverksmiðjur, verður svipað uppi á ten- ingnum og þegar einstakir gamaldags handiðnamenn eru bornar saman við stórverksiniðjur þær, sein vinna störf þeirra. Eins og menn vita, er sá samanburður handiðnamönnunuin erfiður, enda útrýma verksmiðj- urnar iðnaði þeirra unnvörpum, hvar sem þær ná til, Og þýðir ekki á móti að strita. Og þó verður saman- burðúrinn jafn vel enn síður Iyfsölunum í vil heldur en handiðnamönniinum mörgum hverjum, því að ýmsir þeir munir, sem menn eiga handa sjálfum sér eða öðr- um til að horfa á og handleika, kjósa þeir heldur að séu handgerðir en unnir i verksmiðjum og vilja jafn vel gefa mikið fé í milli. Við slíka muni þykir það kost- ur, að þeir séu hver öðrum ólíkir, þó að af sömu teg- und séu, beri vitni hagleik þeirrar handar, sem um hefir fjallað og spegli persónuleik meistarans. Þetta nær ekki til lyfjanna. Af þeim, hygg ég, að menn heimti í'ramar öllu öðru þau fimm atriði, sem talin voru upp hér að framan; hirði aldrei að það sjáist, hver á þeim hefir snert og kjósi helzt, að þau séu sem allra minnst handfjölluð. Yfirburða stóriðnaðár'ins í þessari grein fram yfir