[vaka] LYFJAVERZLUN Á ÍSLANDI. 287 hætti iyfjasölufrumvarpinu var vísað frá Alþingi tii stjórnarinnar. Til þess að gefa lesandanum nokkra hugmynd um verð á verksmiðjulyfjum í smábögglum eða gJösum, hæfilega stÖrum og að öllu leyti tilbúnum til að af- hendast sjúklingunum, hefi ég litið yfir síðustu verð- skrár þeirra Burroughs Wellcome & Co. og Parke, Davis & Co., tínt úr þeim þau lyf, sem ég í fljótu bragði sá, að voru ýmist alveg hin sömu eða að minnsta kosti fyllilega tilsvarandi ýmsum lyfjum á hinni íslenzku lyfjaskrá og seld í ánióta stórum skömmtum og vant er að afgreiða í einu handa sjúklingum, og borið síðan verðið saman við verð núgildandi lyfjataxta frá 1. des- ember 1928. Að öðru leyti er valið gersamlega af handa- hófi. Fyrir það hefi ég tekið fleiri dæmi frá Burroughs Welcome & Co., að Parke, Davis & Co. greina yfirleitt verð sitt á stærra skammti en hæfilegt yrði talið að áf- greiða í einu. Fer þessi samanb.urðuf hér á eftir. Er- lenda verðið er tilgreint eins og það er á vönmum á höfn í Lundúhum eða annars staðar í Bretlandi og miðað við verðskrárnar að frádregnum 25%. En það eru þau kjör, er bæði þessi firmu veita Iyfsölum, eftir því sem þau t.jáðu mér, og er ekki gert ráð fyrir, að meira þurfi að kaupa í einu, til þess að sæta þeim kjör- um, en í hæsta lagi tólf sinnum þann skammt, sem hcr er greindur. Innlendu lyfin eru verðlögð í tíðkanlegum uinbúðum, fljótandi lyfin í venjulegum glösum, en þuru lyfin í einföldum og ódýrum pappaöskjum. Þola þær umbúðir vitanlega engan samanburð við erlendu um- búðirnar. Allar lyfjatölurnar (tabloids) frá verksmiðj- unum eru t. d. i snyrtilegum glerglösum með skrúfuðu loki og aðrar umbúðir og frágangur þar eftir. Um vöru- gæðin vísa ég til þess, sein áður er sagt, en hér er þó rétt að geta þess, að öll þau lyf, sem kunn eru að því,