[VAKA] LYFJAVERZLUN A ISLANDI. 289 að hafa hæpinn eða breytilegan lækningakraft, sann- prófa verksmiðjurnar áður en þær selja þau, en það gera lyfjabúðirnar ekki. Ég nefni t. d. af þehn lyfjum, sem hér eru greind Oleum Jecoris Aselli (þorskalýsi), Tinctura Digitalis, Tinctura Strophanti og Tinctura thebaica (ópíumsdropar), sem öll eru þannig sannpróf- uð og lækningagildi þeirra ákvarðað (lyfin standard- iseruð). Ég hygg að þessi samanburður, þó að hann sc ekki lengri, gefi nokkurn veginn rétta hugmynd um, hver munur er yfirleitt á lyfjaverði þessara tveggja verk- smiðja og lyfjaverðinu i íslenzkum lyfjabúðum. Telst mér til, að verðmunurinn jafni sig upp með að vera sem næst 120%. Eftir þeim upplýsingum, sem Lyfja- verzlun ríkisins hefir góðfúslega látið mér í té, mun óþarfi að láta kostnaðinn við að koma tilbúnum Iyfja- vörum til íslandp, ásamt hæfilegum heildsölukostnaði, fara fram úr 2030%. Ætti þá að vera hægðarleikur að kaupa hin ágætu lyf þeirra Burroughs Wellcome & Co. og Parke, Davis & Co., að öllu fullgerðum pg um- búnum til afhendingar, ætla vel fyrir öllum kostnaði bæði til heildsala og smásala og lækka þó lyfjaverðið ekki óverulega. Gerum kostnaðinn við heildsöluna og heimflutninginn 30%. Smásalan, hygg ég, að væri kon- unglega borguð með öðrum 30%, þar sem hún yrði svo einföld sem hugsast getur og ekki í öðru fólgin en því að afhenda lyfin fullgerð, umbúin og jafnvel aletruð. Miðað við þetta mætti því, auk alls annars ávinnings, lækka lyfjaverðið frá því sein nú er um meira en 20%. Sagan er þó hvergi nærri fullsögð með þessu og auð- gert að lækka lyfjaverðið stórum meira. Bæði þessi firmu tjáðu mér, að ef um mikil viðskifti væri að ræða, væri meiri afsláttur sjálfsagður. Og er ég nefndi til dæmis, að lyfjaheildsala, er ætti að birgja land eins og Island, sæktist eftir að kaupa af þeim fleiri eða færri 19