290 VILM. JONSSON: [vaka] v.örutegundir, bað annað þeirra (P. D. & Co.) mig að minnast ekki á verðskrárverð þeirra í því sambandi og stakk upp á 40% afslætti eða meiru. Þvi til staðfestu gerðu þau mcr bæði málamyndartilboð um sölu á ýms- um algengum lyfjum, miðuð við slík viðskifti, og var það verð langt fyrir neðan það, sem hér er greint. Eg nefni til dæmis, að Parke, Davis & Co. bjóðast þá til að selja 1000 aspíríntölur (0.50 grm.) á 8 sh. eða ekki fullan eyri stykkið, að vísu þá ekki í smábögglum, og annað þar eftir. Nú er þess enn að gæta, að bæði þessi firmu inunii vera miklu kunnari að því að selja afar vandaðar vörur en að bjóða þær við lágu verði. Og að minnsta kosti annað þeirra (B. W. & Co.) gat þess hvað eftir annað við mig, er við ræddum um þetta efni, að það keppti alls ekki um lágt lyfjaverð. Var mér í Englandi bent á þirðja í'irmað, sem talið var mjög áreiðanlegt, en mun ódýrara en hin tvö, og munu brezkir læknar hafa einna mest viðskifti við það. En mér vannst ekki tími til að kynna mér það nánar. Nú er verðlag i Englandi, eins og kunnugt er, mjög hátt. Og þykir mér því ekki ólík- legt, að bæði í Frakklandi og Þýzkalandi og jafnvel ekki sizt i Danmörku megi fá tilbúin verksmiðjulyf frá ágætum verksmiðjum enn ódýrari en í Englandi. En það hefi ég því miður ekki kynnt mér til neinnar hlítar. Loks skal ég geta þess, að Parke, Davis $ C». bentu mér góðfúslega á leið, er þeir tðldu, að mundi draga mjög verulega úr kostnaðinum við kaup á tilbúnum verksmiðjulyfjum. Til lands eins og íslands sögðu þeir, að óráðlegt væri að kaupa lyfin í smábögglum eðu glös- um, í ekki stærri skömmtum en svo, að hæfilegir væri til að afhenda sjúklingum í einu, nema hin sjaldgæfari lyf, sem Htið er "notað af. Öll algengari lyfin værí rétt að kaupa í stórum ílátum til heildsðlu á Islandi, og hún siðan látin annast um sundurdeilingu þeirra, umbúðir og áletrun í hendur smásölunum, læknum og lyfsölum