[vaka] LYFJAVERZLUN Á ÍSLANDI. 293 inga og felur henni að semja skrá yfir öll þau lyf, sam- sett og ósamsett, i hæfilega breytilegum skömmtum og fullbúin til notkunar, sem talið er nauðsynlegt að séu tiltækileg læknum á íslandi. Skal þess gætt, að lyfin séu sem vísindalegust að allri gerð og samsetningu og í því formi, að sem minnst fari fyrir þeim, í tölum og berjum að svo miklu leyti sem unnt er, en fljótandi lyfin í hæfilega stórum glösum og smyrslin í tinbelgjum eða baukum, og gert ráð fyrir, að flest eða öll megi fá í'ull- gerð úr verksmiðjum, umbúin, áletruð og tilbúin til að afhendast sjúklingunum. Lyfjaheikisala í Reykjavík hafi einkarétt á að í'Iytja lyf og lyfjaefni inn í landið. Lyfin kaupir hún frá við- urkenndum verksmiðjum, ýrrxist í smáilátum, hæfilegum til afhendingar eða, þegar hún álílur tilvinnandi, í stærri skömmtum, sem hún deilir í sundur og býr um í hendur smásölunum. Límir hún eða innsiglar merki sitt á hvern böggul og letrar smásöluverðið á. Vitanlega er ekkert því til fyrirstöðu, að þessi stofnun búi til eða blandi þau lyf, sem hún kann að geta keppt við verk- smiðjurnar um að gera á jafn ódýran hátt og komi þannig smátt og smátt upp visi til innlendrar lyfja- verksmiðju. Væri vel, ef að því væri unnt að keppa. Ættum við t. d. með tímanum að geta komizt upp á að gera úrvalslyf úr okkar ágæta þorskalýsi og selja það síðan kryddað og ókryddað með vísindalega ákvörðuð- um og metnum bætieí'num út um allan heim. Til heild- sölunnar eiga og læknar að geta leitað, ef það kemur fyrir, að þeir telja sig þurfa einhverja lyfjasamsetn- ingu, sem ekki er á hinni opinberu lyfjaskrá og of sein- legt eða masmikið þykir að fá hana tilbúna frá út- löndum. í sambandi við lyfjaheildsöluna skal vera lyfjarann- sóknarstofa og hinn hæfasti maður fenginn til að veita henni forstöðu. Hefir hann vísindalegt eftirlit með