[VAKA] LYF.TAVERZLUN Á ÍSLANDI. 295 Ég býst við, að læknarnir, tinkum þeir, sem sjálfir hafa lyfjasölu á hendi, mundu kunna vel þessu fyrir- komulagi, enda yrði ólíku saman að jafna, hve lyfsalan yrði þeim auðveldari með þessu móti. Hinu get óg trú- að, að Iyfsalarnir teldu nærri sér höggvið. Væru þessi ráð upp tekin, mundu störf þeirra verða mikhi um- fangsminni en áður og varla fyrir svo lærða menn, sem nú eru taldir sjalfsagðir til lyfsölustarfa. Á öllum hin- um smærri stöðum á íslandi mætti leggja lyfjabúðirnar niður og fá læknunum aftur í hendur lyfsöluna. Eg ætla, að ekki yrði þörf á sérstökum lyfsölum nema í allra stærstu héruðunum og nóg að hafa eina eða i hæsta lagi tvær lyfjabúðir í Reykjavík. Fulllærðir lyfja- fræðingar þyrftu hvergi að vera nema við heildsöluna. Aðra Jyfsala væri hægt að mennta nægilega við störf þar og- stutt námskeið að auki. Nú mun einhverjum detta í hug, að eftirsjón sé að þessari vinnu út úr landinu, en þar til er því að svara, að lyfjagerðin er nú að miklu leyti í höndum útlend- inga, svo að litlu er að tapa. Kæmi það sér miklu frem- ur vcl að geta smátt og smátt skilað dönsku lyfsölun- um heim aftur, því að hvergi er síður viðeigandi að hafa útlenda starfsmenn en einmitt í þessari grein. Hvarvetna þar sem svipaðuin endurbótum á Jyfsöl- unni hefir verið hreyft erlendis, hafa lyfsalarnir risið öndverðir á móti, en eftir því sem ég veit bezt, hefir annars flqkkadráttar lítið sem ekkert gætt. Nýleg.t hefir nefnd, sem setið hefir á rökstólum í Noregi, skilað áliti sínu um fyrirkomulag Iyfjaverzlunarinnar þar. Leggur meiri hlutinn til, og í honum eru menn af öll- um flokkum, að ríkið taki að sér allan lyfjainnflutn- inginn. Minni hlutinn, sem engu vill breyta, eru lyf- salarnir í nefndinni. Þekktir íhaldsmenn í Noregi hafa barizt fyrir fullkominni þjóðnýtingu á allri Iyfjagerð og lyfsölu.